26.05.2010 18:58
Næstkomandi Sunnudag (30. maí) munu hrossaræktarsamböndin á
Norðurlandi standa fyrir opnum fundi á Hótel Varmahlíð vegna hinnar
svokölluðu hestapestar. Tilgangur fundarins er að miðla upplýsingum til
hrossaræktenda og tamningamanna vegna veikinnar og gefa mönnum færi á að
skiptast á skoðunum um stöðu mála. Gestir fundarins verða Sigríður
Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma, Vilhjálmur Svansson, dýralæknir á
Keldum og Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur BÍ. Fundurinn
hefst kl: 20:00.
Hrossaræktarsamband Skagfirðinga
Hrossaræktarsamtök
Eyfirðinga og Þingeyinga
Hrossaræktarsamtök V-Húnavatnssýslu
Samtök
hrossabænda í A-Húnavatnssýslu