Aðalfundur 2020
Aðalfundur Neista verður haldinn í reiðhöllinni fimmtudaginn 6. febrúar klukkan 18:00
Dagskrá
- Fundarsetning og skipan starfsmanna.
- Skýrsla stjórnar. Formaður fer yfir starf síðasta árs.
- Ársreikningur
- Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning
- Inntaka nýrra félaga
- Kosningar
- Kosning til stjórnar, kosið er um formann til eins árs og tvö stjórnarsæti til tveggja ára
- Kosið í nefndir
- Önnur mál
- Fundi slitið
Þeir sem vilja gefa kost á sér í stjórn eða nefndir félagsins eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Magnús s.698-3168 eða gefa kost á sér á fundinum.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta.
-Stjórnin