03.06.2008 23:23

Æskulýðsnefnd Neista

Knapamerki 1 og 2 og reiðskólinn

Hjá hestamannafélaginu Neista hófu í vetur um 50  börn reiðkennslu á hinum ýmsu stigum, í knapamerki 1 voru 14 nemendur og í knapamerki 2 voru 6 nemendur. Þau komu öll í reiðhöllina fimmtudaginn 29.maí, byrjað var á pizzaveislu og drykkjum að því búnu tóku nemendur við prófskirteinum og fengu svo að gjöf ábreiðu fyrir hestinn sinn  með ísaumuðu nafni eiganda, stallmúl og taum allt í stíl. Til hamingju krakkar þið stóðuð ykkur vel.

Nemendur sem hyggjast stunda nám samkvæmt Knapamerkjunum þurfa að vera 12 ára (miðað við fæðingarár) eða eldri. 
Heimilt er að bjóða nemendum að taka stöðupróf á 1. og 2. stigi og fara t.d. beint upp á 2. stig eftir að hafa staðist bóklegt og verklegt stöðupróf á 1. stigi. Ekki er hægt að taka stöðupróf á 3., 4., og 5. stigi.
Verklegi þátturinn gildir 70% en sá bóklegi 30%

Yngri hópur reiðskólans kom svo saman þiðjudaginn 03.júní og byrjuðu þau á að hita sig upp með boltaleikjum svona til að vera klár í pizzaveisluna á eftir og gerðu þau pizzunum góð skil ,að því loknu tóku þau við viðurkenningarskjölum og stallmúl að gjöf
og voru þau svo heppin að Þórunn Marta átti afmæli og splæsti frostpinnum á allann hópinn Takk fyrir það Þórunn Marta og til hamingju með afmælið þitt og að sjálfsögðu var sunginn afmælissöngurinn fyrir skvísuna.
Höfðum við tvo reiðkennara í vetur þær Nadine og Sirrý sem eru búnar að standa sig mjög vel en fljótlega kom í ljós að ekki var allt með felldu því að því að þarna inni einhversstaðar leyndist lítill laumufarþegi hjá Sirrý , við fengum svo að sjá prinsinn í kvöld og hann er svo lítill og sætur til hamingju Sirrý og Jóhann.

Takk Takk krakkar fyrir Stórsýninguna, Æskuna og hestinn, Bæjarstjórasýninguna þið eruð búin að standa ykkur frábærlega vel í vetur verið svo líka dugleg að æfa ykkur í sumar eins og þið vitið þá skapar æfingin meistarann, foreldrar takk fyrir ykkar framlag því án ykkar hefði þetta ekki gerst.

Gleðilegt sumar

Æskulýðsnefnd Neista
Jóhanna, Jakobína, Sonja og Silla
Flettingar í dag: 701
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 924
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 426303
Samtals gestir: 50896
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 13:14:04

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere