18.06.2008 22:59

Primadonnuferð Neista

Prímadonnuferð Neista var farin 14. júní sl. í frábæru veðri
Þemað var köflótt og mættu konur og hestar í köflóttu að sjálfsögðu
Farið var frá Sauðanesi og riðið suður með vatni og áð í skógi vöxnu Nesinu. Frábær staður fyrir menn og hesta en helst of mikil fluga og komu því flugnanetin sem við fengum í upphafi ferðar að góðum notum. Ýmsar góðar veitingar voru bornar í okkur og gerðum við þeim góð skil.
Úr Nesinu hélt hópurinn niður með Laxá en við Langhyl vildi svo einkennilega til að við fundum þar plastpoka  í ánni með  ýmiss konar svaladrykkjum
Haldið var að Mánafossi og áð aftur og síðan haldið niður í Reiðhöll og í grillveislu hjá strákunum.
Frábærlega góð ferð og eiga þær þakkir skildar þær Edda, Ingibjörg og Sonja fyrir skipulagningu og góða ferð. Einnig þökkum við strákunum þeim Gumma Fúsa og Þórði fyrir að grilla og bera í okkur veitingar .
Ekki má gleyma að þakka styrktaraðilunum
Hollt og gott, Kjarnafæði, MS, Vífilfelli og N1 sem gáfu kjöt, salat, gos o.þ.h. Kærar þakkir fyrir.

Myndir hafa verið settar í myndaalbúm en þær voru teknar af Eddu og Selmu.
Flettingar í dag: 358
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 621
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 425036
Samtals gestir: 50844
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 12:24:45

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere