28.06.2009 15:26

Reiðnámskeið á Þingeyrum fyrir börn og unglinga


Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga

Dagana 7 til og með 10 júlí verður haldið reiðnámskeið ætlað börnum og unglingum hér á Þingeyrum (aldurstakmark 8 ára). Kennt verður frá kl. 13:00 - 15:00 og kennarar eru Helga Thoroddsen, reiðkennari og Christína Mai, þjálfari og tamningamaður. Alls komast 10 þátttakendur að á námskeiðinu sem verður sambland af leikjum og æfingum í reiðhöll og frjálsum útreiðum. Hestar og reiðtygi er á staðnum en þátttakendur þurfa helst að hafa með sér eigin hjálm. Einnig er leyfilegt að koma með eigin hest ef hann er þægur í reið og góður í umgengni við aðra hesta og menn. Námskeiðsgjald er kr. 12.000. Skráning fer fram í gegn um síma: 863-4717 (Helga) eða á netfangið: [email protected]. Við skráningu þarf að taka fram fullt nafn, aldur og hvort viðkomandi er algjör byrjandi eða aðeins vanur.

Á myndinni má sjá þátttakendur á námskeiði fyrir nokkrum árum ríða yfir Húnavatnið.


Flettingar í dag: 555
Gestir í dag: 42
Flettingar í gær: 621
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 425233
Samtals gestir: 50859
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 20:26:57

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere