18.07.2009 22:35Setning HúnavökuÞað var flottur hópur Neistafélaga sem reið frá Arnargerði niður á torg þar sem setning Húnavöku sem og önnur fjölskyldudagskrá fór fram í dag. Fyrir hópnum fóru fánaberarnir Harpa, Karen og Stefán en á eftir þeim komu um 25 manns, börn og fullorðnir. Með í för voru einnig þeir Arnar Þór bæjarstjóri og Valgarður forseti bæjarstjórnar en bæjarstjórinn setti svo hátíðna þegar niður á torg var komið. Ferðin gekk vel og stilltu knapar og hestar sér upp á torginu, hátiðin var sett og síðan var Árbrautin riðin til norðurs og Húnabrautin til baka og aftur upp í Reiðhöll. Frábærlega skemmtilegt og flott og fengu hestar og menn, þó aðalega hestar, þónokkra athygli gesta þar sem þeir stóðu á meðan hátíðn var sett. Myndir eru komnar í albúm en ef einhver lumar á skemmtilegum myndum sem setja má hér inn þá endilega senda þær á [email protected] Skrifað af selma Flettingar í dag: 669 Gestir í dag: 19 Flettingar í gær: 709 Gestir í gær: 26 Samtals flettingar: 409896 Samtals gestir: 49746 Tölur uppfærðar: 29.3.2024 15:45:53 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is