19.06.2010 10:00

17. júní

Það var blíðskaparveður á Blönduósi 17. júní þegar hátíðarhöld fóru fram sem hestamannafélagið Neisti hafði umsjón með eins og undanfarin ár.

Margt var í boði en dagurinn byrjaði á því að Hjörtur formaður og Sigurjón Guðmunds mættu eldsnemma á lyftara til að setja fánana upp og náðust af því myndir þar sem myndasmiður fór líka snemma á fætur emoticon   

 
Börnum var boðið á hestbak í  Reiðhöllinni og var ágætis þátttaka. Gott var að sjá hesta aftur í Reiðhöllinni en þar hefur varla sést hestur síðan í lok apríl.


"Forsetaskjóna" var treyst fyrir börnum undir styrkri stjórn Bjargar en hún sagði upp vöfflubakstri þar sem hún tapaði fyrir Óla syni sínum í fyrra og þau Maggi Ó., ásamt fleirum tóku að sér að teyma undir börnum þennan morguninn.

Að venju var "blásið" í blöðrur og skrúðganga var farin frá SAH. Þar var andlitsmálun og ýmiss 17. júní varningur til sölu og var bara góð mæting og skemmtileg stemming  á planinu.



Á Bæjartorginu stjórnaði Gísli Geirsson dagskrá, Sr. Sveinbjörn Einarsson flutti hugvekju, Þórdís Erla Björnsdóttir var fjallkonan að þessu sinni, hátíðarræðuna flutti Bóthildur Halldórsdóttir og tónlistaratriði voru flutt af Dagmar og Sigurjóni annars vegar og þeim Höskuldi og Pálma hins vegar og síðan voru leikir fyrir börnin á Þríhyrnunni.    

Kaffi og vöfflubakstur var í höndum Neistafélaga og þar stóðu Knapamerkjakonur ásamt fleiri konum sig stórkostlega eins og alltaf.


Guðrún, Jóna, Harpa og Árný


Sýndar voru 3 kvikmyndir. Ein þeirra, Fákar og fólk, er heimildarmynd úr Laxárdalnum og Skrapatungurétt. Myndin var tekin haustið 2008 og sýnir hrossasmölun á Laxárdal og stóðréttir í Skrapatungurétt og fjallar um það ævintýri sem þessi viðburður er. 

Í myndinni koma m.a. fram: Haukur Pálsson, Haukur Suska, Valgarður Hilmarsson, Ragnheiður Jónsdóttir og Jón Ingi Einarsson. Haukur Ásgeirsson, Benedikt Blöndal og Skarphéðinn Einarsson sömdu tónlistina en Örn Ingi  framleiddi myndina. Hann fékk þetta frábæra fólk uppá svið fyrir sýningu og veitti þeim þakklætisvott fyrir góða og skemmtilega samvinnu.


Haukur, Ragnheiður, Valgarður, Jón Ingi, Haukur, Benedikt, Haukur og Örn Ingi

(á myndina vantar Skarphéðinn).



Fótboltaleikur ársins fór fram þetta kvöld  en það var stórleikur Brunavarna A-Hún gegn meistaraflokki Hvatar í knattspyrnu. Þar áttust við leikmenn meistaraflokks Hvatar í knattspyrnu og liðsmenn Brunavarna A-Hún. Fjöldi manns kom til að fylgjast með leiknum en óhætt er að segja að leikurinn hafi verið hin besta skemmtan frá upphafi til enda og líka í framlengingunni.       

     


Um kvöldið var fjölskyldudiskótek sem Sindri Guðmundsson hafði umsjón með.


Stjórn Neista þakkar öllum kærlega fyrir hjálpina, án ykkar væri þetta ekki framkvæmanlegt. Einning þökkum við þeim sem styrktu okkur á einn eða annan hátt kærlega fyrir og öllum sem komu á hátíðahöldin og í kaffið kærlega fyrir komuna.       



Myndir eru komnar í myndaalbúm, teknar af Höskuldi og Selmu. Takk fyrir þær.

Flettingar í dag: 99
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 709
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 409326
Samtals gestir: 49728
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 02:05:22

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere