18.06.2011 09:56

17. júní


Eins og undanfarin ár hafði hestamannafélagið Neisti umsjón með 17. júní hátíðarhöldunum á Blönduósi en það viðraði ekki beint vel á hátíðargesti svo hluti af dagskránni var flutt inn í bíósalinn í félagsheimilinu.


Dagskráin var með hefðbundnum hætti, börnum boðið á hestbak uppí reiðhöll.


Dorgveiðikeppni var út á bryggju þar sem Beggi Páls réði ríkjum. Það veiddist einn fiskur ....


Angela "blés" í blöðrur eins og fyrri ár....




og skrúðganga var frá SAH afurðum að Bæjartorgi þar sem hátíðardagskrá fór fram, þ.e. hluti hennar inni þar sem hellirigndi þegar skrúðganga byrjaði.

Erla Hrönn Harðardóttir var fjallkonan í ár.


Þar sem ekki náðist að koma öllum græjunum inn með svo skömmum tíma varð hljómsveitin, Svanur, Gutti, Aggi og Anna Sigga að spila úti en þau fluttu nokkur skemmtileg lög. 



Og eins og alltaf kom frábært fólk í eldhúsið. Jón Árni tór sig vel út við vöffludeigið og Áslaug að baka það emoticon



Magnús Ólafsson bauð uppá útsýnisflug og fór hann margar ferðir um loftin blá.

 

Stjórn Neista þakkar öllum kærlega fyrir hjálpina, án ykkar væri þetta ekki framkvæmanlegt. Einning þökkum við þeim sem styrktu okkur á einn eða annan hátt kærlega fyrir og öllum sem komu á hátíðahöldin og í kaffið kærlega fyrir komuna.       

Flettingar í dag: 406
Gestir í dag: 67
Flettingar í gær: 4592
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 431983
Samtals gestir: 51081
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 21:57:31

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere