31.03.2012 11:53

USAH 100 ára - hátíðardagskrá í dag


Í tilefni af 100 ára afmæli Ungmennasambands Austur-Húnvetninga, verður hátíðardagskrá í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi í dag, laugardaginn 31. mars klukkan 14:00-16:30. Stjórn USAH vonast til þess að sjá unga sem aldna samgleðjast USAH á þessum merku tímamótum. Allir hjartanlega velkomnir.

Meðal dagskrárliða má nefna:

·         Myndasýning úr starfi USAH í 100 ár.

·         Myndir frá myndasamkeppni 3.-6. bekkjar til sýnis - verðlaun veitt fyrir bestu myndirnar.

·         Ljóðin í ljóðasamkeppni 7.-10. bekkjar til sýnis - verðlaun veitt fyrir bestu ljóðin.

·         Afmælisterta í tilefni dagsins.

·         Aðildarfélögin með kynningu á starfsemi sinni og má þar m.a. nefna:

o    Frjálsíþróttamót þar sem börn úr sýslunni etja kappi.

o    Golfkynning.

o    Knattspyrnukeppni á sparkvellinum.

o    Skothittni í íþróttahúsinu.

o    Keppni í að halda bolta á lofti á sparkvellinum.

o    Skotfélagið Markviss með sýningu á munum.

o    Sunddeild Hvatar með kynningu í sundlauginni.

o    Kynning á starfssemi skíðadeildar Fram.

o    Hestamannafélagið Neisti með kynningu í reiðhöllinni frá kl. 16:30-17:30.

o    O.fl.

·         Húnavökuritin frá upphafi til sýnis.

·         Fjöltefli í skák.

·         Klifurveggurinn opinn fyrir gesti.

·         Júdókynning.

·         Og margt fleira skemmtilegt.


Flettingar í dag: 4501
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 229
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 431486
Samtals gestir: 51005
Tölur uppfærðar: 23.4.2024 17:31:14

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere