Ísmótið á Svínavatni verður laugardaginn 2. mars nk. Skráningar berist á
netfangið [email protected] í síðasta lagi þriðjudaginn 26. febrúar.
Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Eftirtalið þarf að
koma fram: Keppnisgrein, kennitala knapa, og IS númer hests.
Keppnisgreinar eru; A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráningargjald eru
3.000. kr. á skráningu og greiðist inn á reikning 0307-13-110496 kt.
480269-7139 í síðasta lagi fimmtudaginn 28. febrúar. Sendið kvittun á [email protected] þar sem fram þarf að koma fyrir hvaða knapa er verið að borga. Vegleg peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin.
Ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heimasíðu mótsins þegar nær dregur.