Opið töltmót verður haldið fimmtudagskvöldið 21. mars kl.20.00 í Reiðhöllinni Arnargerði.
Keppt
verður í unglingaflokki (16 ára og yngri), áhugamannaflokki og í opnum flokki. Skráningargjald er
kr.1.500 fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur eftir það.
Skráning sendist á netfang [email protected] fyrir miðnætti þriðjudagskvöld 19. mars. Fram
þarf að koma knapi og hestur og upp á hvaða hönd skal riðið sem og í hvaða flokki er keppt.
Skráningargjöld má greiða inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 áður en mót hefst en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum).