Þá er komið að lokakeppni Mótaraðar Neista en keppt verður í tölti og fimmgangi nk. mánudagskvöldið 7 apríl. Keppni hefst kl.19.00. ath. breyttan tíma !!!
Skráning er á nýtt netfang hjá Neista [email protected] fyrir miðnætti laugardagskvöldið 5 apríl nk. Ráslistar verða birtar á sunnudegi og því er ekki tekið við skráningum eftir auglýstan tíma !!!
Fram þarf að koma nafn og kennitala knapa, flokkur, hestur og IS númer.
Skráningargjöld eru 1.500 kr. fyrir fullorðna þ.e.a.s. fyrir fyrsta hest en 1.000 krónur eftir það og 1.000 fyrir unglinga.
Skráningargjöld má greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista [email protected] en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum).
Nánari upplýsingar koma síðar í vikunni !!