Færslur: 2013 Mars

07.03.2013 08:26

Svínavatn 2013 - ráslistar





Dagskráin hefst stundvíslega kl. 11.00 laugardagsmorguninn 9. mars,

B-flokkur forkeppni
B-flokkur úrslit
A-flokkur forkeppni
A-flokkur úrslit
Tölt forkeppni
Tölt úrslit

sjá ráslista á heimasíðu mótsins.


06.03.2013 17:28

Fjórgangur - ráslisti

Rásröðin í fjórgangi  7. mars kl. 20.00

Skráningargjöld má greiða áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum).

Aðgangseyrir er 500 kr. en frítt fyrir 12 ára og yngri (ekki er tekið við greiðslukortum).


Prógrammið er þannig að það eru riðnir  4 og 1/2 hringur í þessari röð: hægt tölt, fegurðartölt, fet, brokk og stökk. Stjórnað af þul.



Unglingar



holl knapi og hestur hönd
1 Sólrún Tinna og Gjá frá Hæl h
1 Lilja Maria og Esja frá Hvammi h 
2 Lara Margrét og Örvar frá Steinnesi v
2 Ásdís Freyja og Hrókur frá Laugarbóli v
3 Sigurður Bjarni og Prinsessa frá Blönduósi v
3 Birna Olivia og Kynning frá Dalbæ v
4 Ásdís Brynja og Ör frá hvammi v
4 Lilja Maria og Hamur frá Hamrahlíð v




Áhugamannaflokkur



holl knapi og hestur hönd
1 Magnús Ólafsson og Píla frá Sveinsstöðum h
1 Sonja Suska og Feykir frá Stekkjardal h
2 Jón Gíslason og Leiðsla frá Hofi v
2 Jóhanna Stella og Hespa frá Reykjum v
3 Hege Valand og Sunna frá Goðdölum v
3 Maria Artsen og Áldrottning frá Hryggstekk v
4 Agnar Sigurðsson og Faktor frá Dalbæ v
4 Þórólfur Óli og Þokki frá Blönduósi v
5 Marit van Schravendijk og Viðar frá Hvammi 2 h
5 Magnús Ólafsson og Huldar Geir frá Sveinsst. h 




Opinn flokkur


holl knapi og hestur hönd
1 Jakob Víðir og Hatta frá Akureyri h
1 Tryggvi Björnsson og Kjói frá Steinnesi h
2 Hjörtur Karl og Syrpa frá Hnjúkahlíð h
2 Ægir Sigurgeirsson og Gítar frá Stekkjardal h
3 Rúnar Örn og Kasper frá Blönduósi h
3 Maríanna Gestsdóttir og Sóldögg frá Kaldárbakka h 
4 Eline Schrijver og Eyvör frá Eyri v
4 Valur Valsson og Breki frá Flögu v
5 Ragnhildur Haralds. og Börkur frá Brekkukoti v
5 Þóranna Másdóttir og Héðinn frá Dalbæ v
6 Þórður Pálsson og  v



05.03.2013 13:11

Svínavatn 2013






Viljum minna á að skráningarfrestur fyrir Svínavatn 2013 rennur út í dag, þriðjudaginn 5. mars samanber fyrri frétt þar um. Nú er kominn vetur aftur og hagstæðar horfur með veður. Það skal ítrekað að verði mótinu aflýst af einhverjum ástæðum þá verða skráningagjöld endurgreidd.

04.03.2013 21:17

Ólafur íþróttamaður ársins



mynd: huni.is

96. ársþing Ungmennasambands Austur Húnvetninga fór fram um helgina en þar var Ólafur Magnússon valinn íþróttamaður ársins hjá aðildarfélögum USAH en hann stóð sig frábærlega vel á keppnisvellinum á síðastliðnu ári.

Ólafur tók m.a. þátt í KS-deildinni, vann töltið og varð í 2. sæti í fjórgangi. Einnig tók hann þátt á Íslandsmóti og var þar í úrslitum í tölti. Hann vann B-flokk á félagsmóti Neista og varð í 10. sæti í B-flokki á Landsmóti á Gáska frá Sveinsstöðum.

Frábær árangur og innilega til hamingju.






04.03.2013 17:49

Grunnskólamót í Þytsheimum


Sunnudaginn 10. mars verður Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra haldið í reiðhöllinni Þytsheimum á Hvammstanga og hefst mótið klukkan 13:00  Þetta er annað mótið í vetur og vonumst við eftir góðri þátttöku og skemmtilegri keppni eins og síðastliðin ár.

Skráningar þurfa að berast fyrir miðnætti á miðvikudag, 6. mars á netfangið:
[email protected]

 Keppt verður í:      

1. - 3. bekkur  fegurðarreið
4. - 7. bekkur tölt
8. - 10. bekkur tölt
8. - 10. bekkur skeið, ef veður og aðstæður leyfa

Við skráningu skal koma fram:

nafn, bekkur og skóli knapa - - nafn hests og uppruni, aldur og litur - - keppnisgrein og upp á hvora hönd skal riðið.

Skráningargjald er 1.000 krónur fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur fyrir næstu skráningar og skal greiða á mótsstað (með peningum - kort ekki tekin) áður en mót hefst.


Ø  Fegurðarreið      1. - 3. bekkur.  Þar eru riðnir 2 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 - 3 keppendur inná í einu.

Ø  Tölt      4. - 7. bekkur.  Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og fegurðartölt einn hringur, samtals þrír hringir .

Ø  Tölt     8. - 10. bekkur.   Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og fegurðartölt einn hringur, samtals þrír hringir.

Ø  Skeið      8. - 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað.  Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir.

Keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað.

    Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu.


Sjá nánar um reglur á heimsíðu Þyts.


02.03.2013 08:53

Mótaröð Neista - Fjórgangur



Næsta mót í Mótaröð Neista er Fjórgangur fimmtudagskvöldið 7. mars kl.20.00 í Reiðhöllinni Arnargerði.

Keppt verður í flokki unglinga (16 ára og yngri), áhugamanna og í opnum flokki. Skráningargjald er kr. 1.000 fyrir fyrstu skráningu og 500 krónur eftir það. Skráningargjald fyrir unglinga er 500 fyrir hverja skráningu.

Skráning sendist á email [email protected]  fyrir miðnætti  þriðjudagskvöldið 5. mars.
Fram þarf að koma knapi og hestur, upp á hvaða hönd skal riðið sem og í hvaða flokki er keppt.

2 keppendur eru inná í einu, þulur stýrir keppni. 

Skráningargjöld má greiða inná reikning Neista 0307-26-055624
kt. 480269-7139  áður en mót hefst en það má líka greiða á staðnum (ekki er tekið við greiðslukortum).

Mótanefnd.

Flettingar í dag: 121
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 4592
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 431698
Samtals gestir: 51029
Tölur uppfærðar: 24.4.2024 08:33:47

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere