Blog records: 2014 N/A Blog|Month_131.01.2014 11:21Frestun ísmótsGóðan daginn.....
Nú höfum við tekið þá ákvörðun að fresta mótinu sömum slæmrar veðurspár. Verður auglýst síðar.
Vaxandi norðaustanátt um hádegi, og él. Norðaustan 13-20 m/s og slydduél eða skúrir síðdegis og á morgun. Hiti um og yfir frostmarki en 2 til 5 stig um tíma.
kv
Mótanefnd
Written by HBE 29.01.2014 23:38Ísmót
Eins og er þá er veðurspáin þannig að það er erfitt að ráða í hana. Gæti orðið hvasst og snjókoma og kannski ekki. Ákvörðun verður tekin um hádegisbil á föstudag varðandi mótið. Mótanefnd Written by HBE 25.01.2014 11:11Fyrsta mót vetrarins - ístölt
Fyrsta mót vetrarins í Mótaröð Neista sem er ístölt, verður haldið á Hnjúkatjörn nk. laugardag 1 febrúar kl.11.00, ef að veður og færð leyfir. Keppt verður í 3 flokkum í mótaröðinni eins og verið hefur.
2 keppendur eru inn á í einu. Riðinn er einn leggur hægt tölt og til baka tölt með hraðabreytingum. Aftur tölt með hraðabreytingum og svo yfirferðartölt til baka. Alls fjórar ferðir. Úrslit eru riðin í hverjum flokki fyrir sig strax eftir forkeppni. Fimm knapar í úrslitum, með þeirri undantekningu þó ef að einhverjir eru jafnir að stigum. Skráningargjald er kr. 1.500 fyrir fyrstu skráningu og 1.000 krónur eftir það. Skráningargjald fyrir unglinga er 1.000 fyrir hverja skráningu. Muna að taka fram IS númer hests og kennitölu knapa líka. Keppendur skrá sig í flokka í upphafi keppni og haldast í þeim flokkum út mótaröðina, með þeim möguleika þó að keppendur mega skrá sig upp um flokk hvenær sem er kjósi þeir það en þá er ekki heimilt að fara til baka og ekki taka þeir með sér þau stig sem að þeir hafi til unnið. Annars gilda almennt reglur LH, og er bent sérstaklega á reglur um fóta,- og beislisbúnað ! Mótanefnd Written by HBE 23.01.2014 21:15Tjarnartölt 2014
Sveitasetrið Gauksmýri og Hestamannafélagið Þytur halda sameiginlega ísmót á Gauksmýrartjörn laugardaginn 25. janúar nk og hefst mótið kl 12:30. Ísinn er spegilsléttur að sögn Jóhanns svo nú er um að gera að skrá á fyrsta mót ársins.
Keppt verður í tölti í 3 flokkum: 1. 1.flokki 2. 2.flokki 3. Barna og unglingaflokki. 5 keppendur í úrslit í öllum flokkum.
Einnig verður keppt í unghrossaflokki ef næg þátttaka næst, en það eru hross fædd á árunum 2008 til 2010 sem eiga þátttökurétt. Þetta verður 4 ferðir (2 fram og til baka), frjáls reið. Skráning á netfangið [email protected] . Lokaskráningardagur er föstudagurinn 24. janúar, skráningargjald er 1.000.- fyrir fullorðna hver skráning en 500 hver skráning fyrir börn og unglinga. Skráningargjald má leggja inn á 0159-26-001081 kt. 550180-0499. Nánari upplýsingar hjá Jóa í síma 869-7992 Hægt að koma hestum í hús á Gauksmýri meðan húsrúm leyfir. Veitingasala verður í veitingasalnum á Gauksmýri. Ef fella þarf mótið niður vegna veðurs birtist það á heimsíðu Þyts á laugardagsmorgun.
Sveitasetrið Gauksmýri og Hestamannafélagið Þytur Written by selma 04.01.2014 02:20Frá æskulýðsnefnd
Pétur Örn Sveinsson og Heiðrún Ósk Eymundsdóttir í Saurbæ ætla að sjá um reiðkennsluna hjá okkur í vetur. Þau munu byrja með bóklega tíma í Knapamerkjum 1,2,3 og 5 dagana 14. og 16. janúar. Áætlað er að verklegir tímar hefjist viku síðar. Því miður var ekki næg þátttaka í Knapamerki 4. Reiðnámskeið fyrir börn munu hefjast í lok mánaðar. Þátttakendur á námskeiðum munu fá tímaskipulag námskeiða sent í tölvupósti þegar nær dregur en öll kennsla mun fara fram á þriðjudögum og fimmtudögum. Eins og áður er sérstök áhersla lögð á að niðurgreiða námskeið fyrir börn og unglinga. Kostnaður fyrir hvern og einn mun liggja fyrir við námskeiðslok. Æskulýðsnefndin Written by Ásdís
Today's page views: 1210 Today's unique visitors: 11 Yesterday's page views: 2139 Yesterday's unique visitors: 43 Total page views: 1137889 Total unique visitors: 94355 Updated numbers: 1.7.2025 07:16:57 |
MenuArchive
Um hestamannafélagið Neista Name: Hestamannafélagið NeistiEmail: [email protected]Birthday: 1943Address: 540 BlönduósLocation: BlönduósAbout: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Linksclockhere
|
© 2025 123.is | Signup for 123.is page | Control panel