Blog records: 2025 N/A Blog|Month_428.04.2025 21:51ReiðmaðurinnÁkveðið hefur verið að kanna hvort áhugi sé meðal Neistamanna og annarra hestamanna hér á svæðinu á því að Reiðmaðurinn I verði í boði í Reiðhöllinni Arnargerði í samstarfi endurmenntunar Lbhi og Neista á hausti komandi. Áhugasömum er bent á að kynna sér málið vandlega á slóðinni https://endurmenntun.lbhi.is/reidmadurinn/. Þeir sem hafa áhuga á að vera með er bent á setja sig í samband við Hörð formann Neista, Erlu Jónsdóttur eða stjórnarmenn Neista. Minnst 10 verða að staðfesta þátttöku svo af þessu geti orðið. 11.04.2025 20:01Smalinn
04.04.2025 08:01
Smali Smali Smali Laugardaginn 12. apríl næstkomandi ætlum við að halda smalamót. Keppt verður í barnaflokk, unglingaflokk og fullorðinsflokk. Einnig fá pollar að vera með. Mótið hefst klukkan 13:00. Skráningu skal senda á messenger á Heiðu Haralds eða á netfangið [email protected] Skráningargjald er 1.500 kr. í alla flokka og skráning er ekki gild fyrr en búið er að greiða það. Kt. 480269-7139. Rn. 0307-26-055624 Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn 10. Apríl kl 23:59
Árangurinn ræðst af brautartíma og felldum keilum. Stigin telja þannig að knapar raðast í sæti eftir besta tímanum, sá sem er fyrstur fær 300 stig, sá næsti 280 stig, 270 og svo framvegis. Við hverja fellda keilu dragast frá 14 stig. Fyrir sleppt hlið eru 28 refsistig. Yfir brúna er ekki leyft að fara á stökki þ.e.a.s. Allur annar gangur er í lagi. Ef brúnni er sleppt þá er það 112 refsistig.
Gult spjald= gróf reiðmennska 30 refsistig. Rautt spjald= MJÖG gróf reiðmennska, úr leik.
Nefndin
Today's page views: 1395 Today's unique visitors: 11 Yesterday's page views: 2139 Yesterday's unique visitors: 43 Total page views: 1138074 Total unique visitors: 94355 Updated numbers: 1.7.2025 07:38:41 |
MenuArchive
Um hestamannafélagið Neista Name: Hestamannafélagið NeistiEmail: [email protected]Birthday: 1943Address: 540 BlönduósLocation: BlönduósAbout: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Linksclockhere
|
© 2025 123.is | Signup for 123.is page | Control panel