Blog records: 2017 N/A Blog|Month_126.01.2017 21:48Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga
Æskulýðsstarfið er að fara af stað með reiðnámskeiðum fyrir börn og unglinga. Skráningar á [email protected]. Bjóðum til fundar í Reiðhöllinni n.k. sunnudag kl 13. Æskulýðsnefndin Written by Selmu 11.01.2017 08:38Heyefnagreiningar fyrir hestamennEfnagreining ehf kynnir nýjungar í niðurstöðum fyrir hestamenn en á niðurstöðublaðinu er reiknað út fóðurgjöf kg hey á dag á hest miðað við þitt hey. Í viðhengi má finna sýnishorn af niðurstöðublaðinu og nánari upplýsingar um heyefnagreiningar fyrir hestamenn. Written by Selmu 11.01.2017 08:33Námskeið 27.-28. janúarLangar þig að læra fimiæfingar, fá hjálp með hestinn þinn og bæta samskiptin? Flott að byrja veturinn á námskeiði og fá hugmyndir af góðum þjálfunaraðferðum. Fanney Dögg Indriðadóttir verður með reiðtíma í reiðhöllinni á Blönduósi og kenna hestamönnum á Blönduósi þjálfunaraðferðir sem virka. Hóptími föstudagskvöldið 27.janúar Skráning: [email protected] Written by Selmu 09.01.2017 17:40Bandmúlanámskeið
Námskeið í að hnýta bandmúla verður haldið í Reiðhöllinni á Blönduósi laugardaginn 14. janúar, kl. 13:00. Neistafélagar sem aðrir eru hvattir til að fjölmenna og læra þessa hagnýtu iðn. Það er gríðarlega þægilegt fyrir hestamenn að geta hnýtt þessa níðsterku múla sjálfir, þá get þeir hannað þann múl sem þeim finnst henta sér og sínum hestum best og haft ýmsar stærðir.
Written by Selmu
Today's page views: 1210 Today's unique visitors: 11 Yesterday's page views: 2139 Yesterday's unique visitors: 43 Total page views: 1137889 Total unique visitors: 94355 Updated numbers: 1.7.2025 07:16:57 |
MenuArchive
Um hestamannafélagið Neista Name: Hestamannafélagið NeistiEmail: [email protected]Birthday: 1943Address: 540 BlönduósLocation: BlönduósAbout: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Linksclockhere
|
© 2025 123.is | Signup for 123.is page | Control panel