Blog records: 2024 N/A Blog|Month_717.07.2024 21:23Torfæra í Kleifarhorni
Laugardaginn 20. júlí klukkan 11:00 - 17:00 fer fram torfæra í Námunni við keppnisvöllinn okkar. Ekki má ríða á keppnisvellinum á meðan. Pössum uppá öryggið! Written by Hafrún 08.07.2024 12:19Landsmót hestamanna 2024Þá er landsmóti hestamanna í Reykjavík lokið að þessu sinni. Við hjá hestamannafélaginu Neista áttum flotta fulltrúa á mótinu og erum við virkilega stolt af þeim! Í öllum flokkum voru virkilega sterkir hestar sem gerðu mótið spennandi og skemmtilegt
Í A flokki áttum við tvo fulltrúa, Viðar frá Hvammi og Hátíð frá Söðulsholti. Lilja Maria Suska keppti á Viðari og hlutu þau 8.35 í einunn. Ásdís Brynja Jónsdóttir keppti á Hátíð og hlutu þær 8.26 í einkunn.
Í B flokki áttum við líka tvo fulltrúa, Húnu frá Kagaðarhóli og Mídas frá Köldukinn 2. Glódís Rún Sigurðardóttir keppti á Húnu og hlutu þær 8.51 í einkunn. Egill Þórir Bjarnason keppti á Mídasi og hlutu þeir 8.26 í einkunn.
Fyrir okkar hönd fór eitt ungmenni á mótið, hún Inga Rós Suska Hauksdóttir. Hún keppti á merinni Freistingu frá Miðsitju og hlutu þær 8.04 í einkunn.
Systurnar Sunna Margrét og Salka Kristín Ólafsdætur kepptu í unglingaflokk. Sunna keppti á Topp frá Litlu-Reykjum og hlutu þau 8.27 í einkunn. Salka keppti á Gleði frá Skagaströnd og hlutu þær 8.21 í einkunn
Meðfylgjandi eru myndir af þessum flottu fulltrúum okkar, í sömu röð og þau eru talin upp hér að ofan.
Written by Hafrún
Today's page views: 1210 Today's unique visitors: 11 Yesterday's page views: 2139 Yesterday's unique visitors: 43 Total page views: 1137889 Total unique visitors: 94355 Updated numbers: 1.7.2025 07:16:57 |
MenuArchive
Um hestamannafélagið Neista Name: Hestamannafélagið NeistiEmail: [email protected]Birthday: 1943Address: 540 BlönduósLocation: BlönduósAbout: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Linksclockhere
|
© 2025 123.is | Signup for 123.is page | Control panel