Blog records: 2019 N/A Blog|Month_904.09.2019 14:22Þjálfaramenntun ÍSÍHaustfjarnám 2019 þjálfaramenntun 1. og 2. stigs ÍSÍ Haustfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 23. sept. nk. og tekur það átta vikur á 1. stigi en fimm vikur á 2. stigi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni. Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda. Þátttökugjald á 1. stig er kr. 30.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin í því verði. Þátttökugjald á 2. stig er kr. 28.000.- og öll námskeiðsgögn eru innifalin. Athugið að þeir nemendur/þjálfarar sem koma frá fyrirmyndarfélögum/-deildum ÍSÍ fá 20% afslátt af námskeiðsgjaldi. Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 20. sept. Rétt til þátttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari. Slóð á skráningu á bæði stig í haustfjarnámi þjálfaramenntunar ÍSÍ 2019: http://isi.is/fraedsla/thjalfaramenntun-isi/skraning-i-thjalfaramenntun/ Allar nánari uppl. um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 514- 4000 & 863-1399 eða á [email protected]
Today's page views: 1395 Today's unique visitors: 11 Yesterday's page views: 2139 Yesterday's unique visitors: 43 Total page views: 1138074 Total unique visitors: 94355 Updated numbers: 1.7.2025 07:38:41 |
MenuArchive
Um hestamannafélagið Neista Name: Hestamannafélagið NeistiEmail: [email protected]Birthday: 1943Address: 540 BlönduósLocation: BlönduósAbout: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Linksclockhere
|
© 2025 123.is | Signup for 123.is page | Control panel