Blogghistorik: 2012 N/A Blog|Month_1228.12.2012 16:31Námskeið með Trausta ÞórTrausti Þór Guðmundsson verður með námskeið 26. og 27. janúar 2013 í töltfimi sem er ný keppnisgrein. Hann mun kenna laugardag og fyrripart sunnudags og námskeiðið endar með keppni í töltfiminni. Sjá má upplýsingar um fyrirkomulag Töltfimikeppninnar á heimasíðu Trausta og hér. Hámarksfjöldi á námskeiðið eru 12. Frekari upplýsingar og skráningar eru hjá Selmu í síma 6619961 og eða á netfang Neista fyrir 1. janúar nk. N/A Blog|WrittenBy Selma 26.12.2012 21:58Myndakvöldi frestaðMyndakvöldi sem vera átti 27. desember kl. 18.30 er frestað um óákveðinn tíma þar sem verðurspáin fyrir þennan dag er leiðinleg. Æskulýðsnefnd N/A Blog|WrittenBy selma 23.12.2012 18:19Gleðileg jólHestamannafélagið Neisti óskar félagsmönnum, Húnvetningum sem og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum stuðning, gott samstarf og ánægjulegar samverustundir á árinu sem er að líða. N/A Blog|WrittenBy selma 23.12.2012 18:10SnjómoksturÞau eru ýmis verkin sem þarf að gera. Mikill snjór kom í sum gerðin uppí Arnargerði í nóvember og hesthúseigendur hafa verið að moka úr þeim undanfarið. Gunni er hér að moka úr gerðinu hjá Ingu Maju og Sighvati, þar var gerðið nánast fullt af snjó. Magnús Ólafsson mokaði allan snjó úr sínu gerði fyrir nokkrum dögum. heilu snjófjöllin komin útfyrir .... N/A Blog|WrittenBy selma 18.12.2012 22:14Frá æskulýðsnefndBúið er að raða niður námskeiðum vetrarins og verður sendur út póstur mjög fljótlega. Ef einhver sem skráði sig á námskeið fær ekki póst endilega hafa samband á netfang Neista eða í Selmu í síma 6619961. Æskulýðsnefnd N/A Blog|WrittenBy selma 18.12.2012 21:29MyndakvöldÞar sem æskulýðsstarf Neista er að hefja sitt 11. starfsár í Reiðhöllinni í Arnargerði þá ætlar æskulýðsnefnd Neista að bjóða öllum þeim börnum, unglingum, ungmennum og kennurum sem hafa verið á námskeiðum og sýningum hjá Neista sl. 10 ár að koma og hittast og hafa gaman saman 27. desember kl. 18.30. Einnig allir þeir sem ætla að vera á námskeiðum í vetur eru boðnir velkomnir. Dregnar verða fram gamlar myndir og upptökur af sýningum úr Reiðhöllinni. Ekki er alveg búið að ákveða hvar við ætlum að vera, trúlega uppí Reiðhöll (auglýst síðar), fer svolítið eftir þátttöku en vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfang Neista svo við vitum hvað við eigum von á mörgum. Foreldrar að sjálfsögðu velkomnir. Elín Hulda og Karen Ósk á sýningu í Reiðhöllinni í mars 2009 Æskulýðsnefnd N/A Blog|WrittenBy selma
Antal sidvisningar idag: 332 Antal unika besökare idag: 19 Antal sidvisningar igår: 249 Antal unika besökare igår: 23 Totalt antal sidvisningar: 439485 Antal unika besökare totalt: 51864 Uppdaterat antal: 3.5.2024 18:38:33 |
MenyArkiv
Um hestamannafélagið Neista Namn: Hestamannafélagið NeistiMejladress: [email protected]Födelsedag: 1943Postadress: 540 BlönduósPlats: BlönduósOm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Länkarclockhere
|
© 2024 123.is | Registrera dig för 123.is | Kontrollpanel