Færslur: 2008 Janúar

28.01.2008 19:23

Úrslit tjarnartölts á Gauksmýri



Tjarnartölt á Gauksmýrartjörn fór fram laugardaginn 26.janúar í ágætis veðri þrátt fyrir slæma spá.  Nokkur snjór var á ísnum en þegar búið var að skafa brautir myndaðist hið besta færi. Margt góðra hrossa var mætt á ísinn og þurfa Húnvetningar ekki að kvíða landsmótsári hvað hestakost varðar.

Það merkilega við úrslitin voru að konur röðuðu sér í 3 efstu sætin í öllum flokkum. Samkvæmt  því er það greinilegt að konurnar eru að taka völdin þar eins og á mörgum öðrum sviðum.

Úrslit urðu þessi í Tjarnartölti:

Barna- og unglingaflokkur.

1. Elísabet Eir Steinbjörnsdóttir á Krema frá Galtarnesi
2. Rakel Rún Garðarsdóttir á Lander frá Bergsstöðum
3. Friða Marý Halldórsdóttir á Reglu frá Efri-Þverá
4. Lilja Karen Kjartansdóttir á Pamelu frá Galtarnesi
5. Helga Rún Jóhannsdóttir á Rúrí frá Bessastöðum

2.flokkur.

1. Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir á Spóa frá Þorkelshóli
2. Guðný Helga Björnsdóttir á Heron frá Bessastöðum
3. Sigríður Ása Guðmundsdóttir á Stak frá Sólheimum
4. Kjartan Sveinsson á Fíu frá Hólabaki
5. Þorgeir Jóhannesson á Apríl frá Ytri-Skjaldarvík

1.flokkur.

1. Ingunn Reynisdóttir á Rakel frá Sigmundarstöðum
2. Herdís Einarsdóttir á Grettir frá Grafarkoti
3. Sigríður Lárusdóttir á Erlu frá Gauksmýri
4. Helga Una Björnsdóttir á Uglu frá Kolluleiru
5. Pálmi Geir Ríkarðsson á Hildi frá Sigmundastöðum


 Þá var keppt í liðakeppni eða hesthúsakeppni og þar urðu sigurvegarar þeir sömu á síðast liðið ár en það var sameiginlegt lið Gauksmýrar og Syðri- Valla. En það er bæði kallað Gauksvellir eða Vallamýri.

Mótshaldarar er Sveitasetrið Gauksmýri . Keppt er um skemmtilega farandgripi. Önnur verðlaun gáfu Tveir smiðir ehf og  Sveitasetrið Gauksmýri

24.01.2008 19:02

Tjarnartölt á Gauksmýri

Tjarnartölt 2008                       


Tjarnartölt verður haldið á Gauksmýrartjörn laugardaginn 26.janúar nk. og hefst kl.14:00.

Keppt verður í 3 flokkum: 1. flokkur , 2. flokkur og barna- og unglingaflokki. Skráningargjald er 1000 kr á skráningu.

Þá er keppt í hesthúsakeppni sem er liðakeppni, að minnsta kosti 4 knapar/hestar mynda lið (mega vera fleirri) sem hefur 5 mínútur til ráðstöfunar til að sýna listir sínar og hafa alla tjörnina sem sýningarsvæði. Dómari eða dómnefnd velur síðan besta liðið. Skráningagjald er 3.000 kr á lið.

Keppt er um veglega farandgripi sem eru gefnir af: Líflandi, Ölgerð Egils Skallagrímssonar, Húsasmiðjunni og Sveitasetrinu Gauksmýri.
Farandgripirnir eru smíðaðir af Ágústi Þorbjörnssyni.

Gefendur annarra verðlauna eru K. Richter ( Kerckhaert skeifur) og Tveir smiðir ehf.

Skráning og upplýsingar í síma 451-2927 eða 869-7992 eða [email protected].
Ef veður hamlar eða ísinn er ekki nógu traustur þannig að fresta þarf TJARNARTÖLTI mun tilkynning birtast á heimasíðu Gauksmýrar www.gauksmyri.is

Jafnframt er tilboð á gistingu og mat fyrir menn og hesta hjá Sveitasetrinu Gauksmýri. ( sjá nánar Hestahelgi www.gauksmyri.is ) auk þess sem veitingar eru til sölu á Sveitasetrinu.
Tilvalið fyrir keppnismenn og hinn almenna hestamann að fjölmenna og taka þátt í þessu fyrsta ísmóti vetrarins. Toppaðstaða fyrir menn og hesta.

24.01.2008 17:42

Mótadagsskrá vetrarins hjá Neista



Meistara keppni Húnvetninga í hestaíþróttum verður sem hér segir !

1)  8. Febrúar Töltkeppni

2) 22. Febrúar Fjórgangur

3) 14. Mars Töltkeppni

4) 11. Apríl Fimmgangur/Tölt Unglinga.

Þessar dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Keppnis flokkar eru 1. Flokkur , Áhugamannaflokkur og Unglingaflokkur.

Ekki er keppt í Fimmgangi unglinga.

Stefnt er á að Stórsýningin verði 29. Mars og svo verður auðvitað ísmót á Svínavatni 8. Mars.

20.01.2008 20:52

Ráðstefna um menntamál hestamanna

Fréttatilkynning: Ráðstefna um menntamál hestamanna

Menntamálaráðuneytið og Landssamband hestamannafélaga bjóða til menntaráðstefnu föstudaginn 1. febrúar klukkan 13:00 - 16:00 í ráðstefnusal F/G á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík

Rástefnustjóri: Karítas Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarskrifstofu Menntamálaráðuneytisins.

Dagskrá:

Klukkan 13:00

1. Setning

2. Menntakerfi íþróttahreyfingarinnar. Viðar Sigurjónsson, sviðstjóri fræðslusviðs ÍSÍ

3. Staðan í menntamálum í dag og Matrixa FEIF. Sigurður Sigursveinsson

4. Þróun menntunnar í hestamennsku á Íslandi, Reynir Aðalsteinsson

5. Framtíðarsýn í menntamálum hestamanna - 2-3 stutt erindi

6. Pallborðsumræður - Framtíðarsýn menntunar í hestamennsku

Ráðstefnulok klukkan 16:00

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis. Skráning er á tölvupóstfangið [email protected]

19.01.2008 20:53

Neistapeysur á börnin

Nú fer í hönd sá tími sem er hvað skemmtilegastur þegar börnin fara að taka inn hrossin og byrja á reiðnámskeiðinu og mörg spennandi mót og sýningar framundan og þá er gaman fyrir alla foreldra og börn ,systkyni ,ömmur og afa (stuðningsliðið) að eiga Neista - peysu þessar flottu kóngabláu með nafninu okkar að framan.
Nú erum við að byrja að taka niður pantanir og þeir sem hafa áhuga á endilega vera í sambandi við Sillu í síma:691-8228.

12.01.2008 17:32

Fundur um málefni reiðhallarinnar

Fimmtudaginn 24. Janúar verður fundur upp í Reiðhöll um Reiðhöllina, aðgengi að henni, Viljatímana, endurnýjaðan samning við Blönduóssbæ og fleira Því tengt. Allir þeir sem hafa hug á að nýta sér Reiðhöllina eru hvattir til að mæta. Í framhaldinu verður svo kaffispjall um hagsmunamál hestamanna á Blönduósi almennt. Fundurinn hefst kl. 21:00 og verður búinn kl. 22:00.

08.01.2008 11:07

Fundur á vegum æskulýðsnefndar Neista

Hestakrakkar og aðrir áhugasamir

Æskulýðsnefnd Neista óskar öllum gleðilegs árs og þakkar fyrir góðar stundir á síðasta ári.

En nú er komið að því að byrja fjörið. Haldinn verður fundur í Reiðhöllinni, Arnargerði, þriðjudagskvöldið 15. janúar kl. 20:00. Kynnt verður hvað er fyrirhugað í vetur og tekið verður við skráningum á námskeið vetrarins. Vonumst til að sjá sem flesta, börn og foreldra.

Jakobína 452 4344 / 893 9226

Jóhanna 452 4012 / 868 1331

Sonja 452 7174 / 616 7449

07.01.2008 11:04

Frá æskulýðsnefnd Neista !

Fundur verður haldinn á vegum æskulýðsnefndar Neista í Reiðhöllinni þriðjudaginn 15. janúar
kl. 20:00.
Farið verður yfir það sem til stendur í vetur og nýjir
reiðkennarar koma og kynna sig. Skráð verður á námskeið vetrarins en þau
verða með hefðbundnu sniði. Hefðbundin námskeið verða einu sinni í viku
og áfram verður boðið upp á knapamerkjanámskeið, einn til tveir hópar
munu reyna við knapamerki 1 og einn hópur mun halda áfram með knapamerki
2. Lágmarksaldur á knapamerkjanámskeiðin er 12 ára (fædd '96 eða fyrr).
Vonumst til að sjá sem flesta, börn og foreldra!


06.01.2008 21:17

Sibba og Víðir með heimasíðu líka

Ekki má gleyma Sibbu og Víði sem opnuðu fína heimasíðu í haust.  Slóðin á hana er: 
http://tamning.is/

Ef það eru einhverjir sem vilja koma heimasíðum sínum á framfæri, þá er um að gera að láta vita.


06.01.2008 21:11

Hrímahestar ehf

Veitti því athygli að Tryggvi Björnsson er kominn með heimasíðu undir nafninu Hrímahestar ehf, en hún er á slóðinni:
http://www.hrima.is/

 

03.01.2008 17:30

Notum endurskinsmerkin !

ENDURSKINSMERKIN
Ágætu hestamenn, nú er kominn sá tími að skyggni er ekki alltaf sem best og myrkur skellur á fyrr en varir. Viljum við minna alla á að taka fram einfaldasta og auðveldasta öryggistæki sem við eigum - ENDURSKINSMERKIN. Kveðja frá LH

Ofangreint birtist á vef LH og á að sjálfsögðu við okkur eins og alla hina.
  • 1
Flettingar í dag: 294
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 485
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 432356
Samtals gestir: 51105
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 09:13:23

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere