Færslur: 2008 September

29.09.2008 18:07

Víðidalstungurétt Húnaþingi vestra


Víðidalstungurétt Húnaþingi vestra
 

 

  Laugardaginn 4.október nk.verður stóði Víðdælinga réttað í Víðidalstungurétt sem stendur í landi  Litlu-Ásgeirsár.

 

Hrossunum er smalað föstudaginn 3.október og rekin til byggða.

 Á laugardagsmorgun 4.október  kl 10.00 eru hrossin svo rekin til réttar og réttarstörf hefjast.

 

 Búast má við því að hrossin séu um 500 auk folalda, og hafa Víðdælingar  löngum viljað meina að um stærstu stóðréttir landsins sé að ræða, ekki hvað fólksfjölda snertir heldur fjölda hrossa, en með auknum áhuga fólks á hrossarækt og hestamennsku hefur verið sívaxandi fjöldi gesta sem vilja  taka þátt í þessari hátíð hrossabænda,bæði í smöluninni og réttinni.

 

 Boðið er uppá að fá að fara ríðandi fram í löndin sem smöluð eru, þyggja þar veitingar og fylgja svo gangnamönnum og stóðinu til byggða.

Upplýsingar hjá ferðaþjónustuaðilum héraðsins.

 

Dagskrá réttardagsins er eftirfarandi.

Kl. 10:00 Stóðið rekið til réttar og réttarstörf hefjast.

Kl. 13:00 Sölusýning við réttina. Eftir sýningu verða hrossin til sýnis og prufu við hesthúsið á Stóru-Ásgeirsá.

Kl.14:30 Uppboð á völdum hrossum. M.a. verður boðið upp merfolald undan Hóf frá Varmalæk og Kilju frá Steinnesi.

Kl. 15:00 Dregið í happdrættinu. Aðalvinningurinn er folald.

 

 Við réttina er kvenfélag sveitarinnar með veitingar og hefð hefur skapast fyrir því að þeir sem versla veitingar taki með því þátt í happdrætti, þar sem m.a. hefur verið folald í vinning.

 

 Loka hnykkur hátíðarinnar er svo Stóðréttardansleikurinn sem haldinn er í Félagsheimilinu Víðihlíð á laugardagskvöldið og þar mun Hljómsveitin Sixties leika fyrir dansi frá kl 23:00 til 03:00.

 

Allir þeir sem gaman hafa af hrossarækt,hestamennsku, hitta hrossabændur og taka þátt í störfum og gleði þeirra eiga fullt erindi í stóðréttir í Víðidal. 

Verið velkomin.

28.09.2008 13:36

Samspil manns og hests, með Alexandertækni

Samspil manns og hests, með Alexandertækni

Alexandertæknin er vel þekkt meðal leikara og söngvara til að leiðrétta ranga líkamsbeitingu og gera nemendur meðvitaða um líkamsstöðu sína. Tæknin miðar að því að losa um neikvæða spennu í líkamanum og er auðveld aðferð til að bæta hreyfingar, jafnvægi og samhæfni. Grunnatriði hennar nýtast einnig til að leiðrétta ásetu og líkamsburði knapans.

Með tækninni er leitast við að leiðrétta slæma ávana sem knapinn hefur tamið sér og jafnframt  er unnið að því að leiðrétta óvana sem hesturinn hefur vanist á.  Galla eins og skort á einbeitingu, stefnuleysi, misskilið taumhald, rangan höfuðburð, slæmt jafnvægi og/eða gangleysi má lagfæra með Alexanderstækni. 

Kennsla: Reynir Aðalsteinsson, tamningameistari.

Hámarksfjöldi: 10 manns
Tími: Helgarnámskeið 24.-26. október.
? fös. 24. okt.  Kl 15:00-19:00, laug 25. okt. Kl 09:00-17:00, sun 26. okt. Kl 09:00-16:00 (22 kennslust.).
Staður: Mið-Fossar í Borgarfirði
Verð: 36.000 kr.
Skráningar: 

Alexandertæknin er vel þekkt meðal leikara og söngvara til að leiðrétta ranga líkamsbeitingu og gera nemendur meðvitaða um líkamsstöðu sína. Tæknin miðar að því að losa um neikvæða spennu í líkamanum og er auðveld aðferð til að bæta hreyfingar, jafnvægi og samhæfni. Grunnatriði hennar nýtast einnig til að leiðrétta ásetu og líkamsburði knapans.

Með tækninni er leitast við að leiðrétta slæma ávana sem knapinn hefur tamið sér og jafnframt  er unnið að því að leiðrétta óvana sem hesturinn hefur vanist á.  Galla eins og skort á einbeitingu, stefnuleysi, misskilið taumhald, rangan höfuðburð, slæmt jafnvægi og/eða gangleysi má lagfæra með Alexanderstækni. 

Kennsla: Reynir Aðalsteinsson, tamningameistari.

Hámarksfjöldi: 10 manns
Tími: Helgarnámskeið 24.-26. október.
? fös. 24. okt.  Kl 15:00-19:00, laug 25. okt. Kl 09:00-17:00, sun 26. okt. Kl 09:00-16:00 (22 kennslust.).
Staður: Mið-Fossar í Borgarfirði
Verð: 36.000 kr.
Skráningar: 
[email protected] eða í síma 843 5302 / 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5.500 kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590. Senda staðfestingu á netfangið
[email protected].

Tamning fjárhunda I

Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja læra undirstöðuatriði við tamningu fjárhunda. Hámarksfjöldi þátttakenda á hvert námskeið er 10 og lágmarksaldur hunda er 6 mánaða.
Þátttakendur vinna með eigin hund á námskeiðinu. Kennsla er að mestu verkleg en að auki eru haldnir fyrirlestrar um notkun fjárhunda. Námskeiðið nýtist eigendum Landamæra-Collie (Border-Collie) hunda best en eigendur annarra hunda geta einnig haft gagn af námskeiðinu. Hundar sem koma á námskeiðið skulu vera bólusettir við smáveirusótt (smitsjúkdómur) og skal bólusetningin ekki vera eldri en 2 ára og ekki yngri en 10 daga. Hugsanleg smithætta er á ábyrgð hundaeigenda. Hundar skulu einnig vera ormahreinsaðir og skal sú hreinsun ekki vera eldri en 12 mánaða.
Umsjón og kennsla: Gunnar Einarsson bóndi á Daðastöðum.

Tími : 2 dagar.
? Námskeið I. mið., 15. okt. 10:00-18:00 og fim. 16. okt., kl 09:00-17:00 (20 kennslustundir) á Hesti í Borgarfirði. 
? Námskeið II.  Fös. 17. okt. 10:00-18:00 og lau 18. okt., kl 09:00-17:00 (20 kennslustundir) að Hurðabaki í Árnessýslu.
? Námskeið III. Mán. 20. okt. 10:00-18:00 og þri. 21. okt., kl 09:00-17:00 (20 kennslustundir) á Grýtubakka I í Höfðahverfi - Eyjafirði.

Verð : 28.900 kr. per þátttakanda.
Skráningar: 
[email protected] eða í síma 843 5302 / 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5.900 kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590.
Minnum á starfsmenntasjóð bænda (
www.bondi.is)

Tamning fjárhunda II

Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem hafa lært undirstöðuatriði við tamningu fjárhunda og vilja bæta við sig framhaldsnámskeiði. Hámarksfjöldi þátttakenda á hvert námskeið er 10 og lágmarksaldur hunda er 6 mánaða.
Þátttakendur vinna með eigin hund á námskeiðinu. Kennsla er að mestu verkleg en að auki eru haldnir fyrirlestrar um notkun fjárhunda. Námskeiðið nýtist eigendum Landamæra-Collie (Border-Collie) hunda best en eigendur annarra hunda geta einnig haft gagn af námskeiðinu. Hundar sem koma á námskeiðið skulu vera bólusettir við smáveirusótt (smitsjúkdómur) og skal bólusetningin ekki vera eldri en 2 ára og ekki yngri en 10 daga. Hugsanleg smithætta er á ábyrgð hundaeigenda. Hundar skulu einnig vera ormahreinsaðir og skal sú hreinsun ekki vera eldri en 12 mánaða.
Umsjón og kennsla: Gunnar Einarsson bóndi á Daðastöðum.

Tími:  1 dagur.
? sun. 19. okt.  kl 09:00-17:00 (10 kennslustundir) að Hurðabaki í Árnessýslu.
? Mið. 22. okt. kl 09:00-17:00 (10 kennslustundir) ) á Grýtubakka I í Höfðahverfi - Eyjafirði.
Verð: 18.500.-
Skráningar: 
[email protected] eða í síma 843 5302 / 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5.900 kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590.
Minnum á starfsmenntasjóð bænda (
www.bondi.is)

24.09.2008 19:57

Snilldar hrekkur sem endaði vel


Snilldar hrekkur sem endaði vel

Í meðfylgjandi sýnishorni heimsækir Fjölnir spútnik manninn Andrés Pétur Rúnarsson sem hafði þá verið í hestamennsku í einar þrjár vikur og vildi helst vita allt en vissi fátt á þessum tíma um hestamennsku. Allt gert til að komast í sjónvarp?

http://www.hestafrettir.is/veftv.asp?CategoryID=30&MovieID=592

24.09.2008 19:35

Hesthúsaeigendur / Hestamenn Arnargerði

Hesthúsaeigendur / Hestamenn Arnargerði

Nú er Laufskálaréttarhelgin framundan. Eins og þið eflaust munið (allvega þeir sem urðu fyrir tjóniemoticon ) þá hefur verið farið inní hesthúsin undan farin tvö ár þessa helgina allavega og þaðan stolið járningaráhöldum , reiðtygjum ofl. Svo verið nú á undan framkvæmdamönnum og hugið að ykkar húsum og dóti. Það er alls ekki ætlunin að lasta Laufskálaréttina eða stemminguna þar í kring síður en svo.

Neisti

21.09.2008 17:34

Hestaníðingur ákærður fyrir barsmíðar

Hestaníðingur ákærður fyrir barsmíðar
www.visir.is
Myndir af aðförum mannsins voru sýndar í Kompási í fyrra.
Myndir af aðförum mannsins voru sýndar í Kompási í fyrra.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur gefið út kæru á hendur tamningamanni fyrir að hafa barið hross ítrekað með svipu í andlit og fyrir að hafa slegið það með flötum lófa og krepptum hnefa í andlitið og síðuna. Enn fremur fyrir að hafa sparkað í kvið hrossins og sveigt háls hrossins upp að hnakki með taumi svo það gat ekki vikið sér eundan höggum og sparki.

Aðfarir mannsins, sem áttu sér stað í apríl í fyrra, náðust á myndband og var það sýnt í fréttaskýringarþættinum Kompási. Atvikið átti sér stað við bæinn Vatnsenda í Kópavogi og ákvað héraðsdýralæknir að kæra barsmíðarnar sem augljós brot á dýraverndunarlögum.

Lögregla tilkynnti hins vegar í fyrra að maðurinn yrði ekki ákærður þar sem ólíklegt væri að það leiddi til sakfellingar. Þeirri ákvörðun var skotið til ríkissaksóknara sem fól lögreglu að fara aftur yfir málið. Það hefur hún nú gert og ákærir hestaníðinginn fyrir brot á dýraverndunarlögum.


21.09.2008 17:28

Sölusýning Varmalandi Skagafirði

Sölusýning Varmalandi Skagafirði

   Sölusýning verður haldin á Varmalandi Sæmundarhlíð í Skagaf. um Lauffskálarrréttarhelgina föstudaginn 26. sept. kl. 13-17 og sunnudaginn 28. sept. kl. 13. Til sölu og sýnis verða hross frá tamningarstöðvunum Varmalandi og Tungihálsi 2 . Um er að ræða hross á öllum stigum tamningar einnig verður  til sýnis hópur efnilegra unghrossa frá Varmalandi og Miðsitjuhestum EHF (Jói og Solla ).

                  Kaffi og kleinur   

                              

                  Allir velkomnir.

21.09.2008 17:26

Miðar á Uppskeruhátíðina rjúka út

Miðar á Uppskeruhátíðina rjúka út!

 

   Miðasala á Uppskeruhátíð hestamanna er í fullum gangi og rjúka miðarnir út. Fáir miðar eru eftir í borðhaldið og eru áhugasamir hvattir til að tryggja sér miða sem fyrst. Hátíðin fer fram á Broadway laugardaginn 8. nóvember nk. og að venju verða knapar ársins í öllum flokkum útnefndir ásamt hrossaræktanda ársins.

Boðið verður upp á sprell og gaman yfir borðhaldi og svo mun stórhljómsveitin "Í svörtum fötum" leika fyrir dansi fram á nótt undir forystu orkuboltans Jónsa.

Miðasalan fer fram hjá Broadway í Reykjavík í síma 533 1100 og í miðasölu Broadway Ármúla 9, alla virka daga frá kl. 12-18. Miðaverð er kr. 7.900 í borðhald og dansleik, en kr. 2.000 á dansleik frá miðnætti. Snyrtilegs klæðnaðar er krafist.

Ekki missa af þessari stórhátíð hestamanna - tryggðu þér miða strax!

 

Félag hrossabænda og Landssamband hestamannafélaga

www.broadway.is

 

Mynd: Knapa árins 2007 hampað. Ljósm.: HGG

15.09.2008 17:32

Landbúnaðarháskóli Íslands

Landbúnaðarháskóli Íslands - endurmenntun LbhÍ

 

    Mikill áhugi er á námskeiðum er viðkemur reiðmannsku. Í sumar bauð Endurmenntun LbhÍ fram tveggja ára námskeiðsröð er nefnist Reiðmaðurinn og hófu 44 nemendur nám á þeirri línu um síðustu helgi. Námið byggir á bóklegum hluta sem tekinn er í fjarnámi og verklegum æfingum einu sinni í mánuði undir handleiðslu tamningameistara og reiðkennara. Endurmenntun LbhÍ býður jafnframt fram stök helgarnámskeið og eru tvö almenn námskeið komin á skrá nú á haustönn.  Á döfinni er einnig áætlað að halda járninganámskeið (framhaldsnámseið) í lok nóvember.

 

Samspil manns og hests, með Alexandertækni

Alexandertæknin er vel þekkt meðal leikara og söngvara til að leiðrétta ranga líkamsbeitingu og gera nemendur meðvitaða um líkamsstöðu sína. Tæknin miðar að því að losa um neikvæða spennu í líkamanum og er auðveld aðferð til að bæta hreyfingar, jafnvægi og samhæfni. Grunnatriði hennar nýtast einnig til að leiðrétta ásetu og líkamsburði knapans. Með tækninni er leitast við að leiðrétta slæma ávana sem knapinn hefur tamið sér og jafnframt  er unnið að því að leiðrétta óvana sem hesturinn hefur vanist á.  Galla eins og skort á einbeitingu, stefnuleysi, misskilið taumhald, rangan höfuðburð, slæmt jafnvægi og/eða gangleysi má lagfæra með Alexanderstækni. 

 

Kennsla: Reynir Aðalsteinsson, tamningameistari.

 

Hámarksfjöldi: 10 manns

Tími: Helgarnámskeið 24.-26. október.

§  fös. 24. okt.  Kl 15:00-19:00, laug 25. okt. Kl 09:00-17:00, sun 26. okt. Kl 09:00-16:00 (22 kennslust.).

Staður: Mið-Fossar í Borgarfirði

Verð: 36.000 kr.

Skráningar:  [email protected] eða í síma 843 5302 / 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).

Undirbúningur vetrarþjálfunar

 

 

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem vilja undirbúa sig vel fyrir komandi þjálfunartímabil. Farið verður yfir atriði sem vert er að hafa í huga í byrjun vetrar, atriði sem snúa bæði að hesti og knapa. Farið verður í vinnuaðferðir, s.s. vinnu við hendi sem  mikilvægt er að tileinka sér og er grunnur að frekari útfærslu í reið. Nú er rétti tíminn til að vinna í því sem krefst nákvæmni og þolinmæði; leiðrétta taumsamband og höfuðburð, lengja og teygja á yfirlínu og styrkja bak.

Kenndar verða einnig fimiæfingar til að bæta jafnvægi, til dæmis opinn sniðgang. Farið verður yfir ásetu og taumhald og fá nemendur greiningu á því sem þarf að bæta og leggja áherslu á hjá sínum hesti.

 

Helstu atriði eru:

  • Taumsamband og höfuðburður
  • Mýkjandi æfingar
  • Styrking yfirlínu
  • Fimiæfingar til að bæta jafnvægi
  • Opinn sniðgangur
  • Áseta og taumhald

 

Kennsla: Reynir Aðalsteinsson, tamningameistari.

 

Hámarksfjöldi: 10 manns

Tími: Helgarnámskeið 14.-16. nóvember

§  fös. 14. nóv.  Kl 15:00-19:00, laug 15. nóv. Kl 09:00-17:00, sun 16. nóv. Kl 09:00-16:00 (22 kennslust.).

Staður: Mið-Fossar í Borgarfirði

Verð: 36.000 kr.

Skráningar:  [email protected] eða í síma 843 5302 / 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 6.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590. Senda staðfestingu á netfangið [email protected].

 

 

Munið að skrá ykkur tímanlega!

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5.500 kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590. Senda staðfestingu á netfangið [email protected].

 

 

Undirbúningur vetrarþjálfunar

 

10.09.2008 16:03

Uppskeruhátíð Hestamanna 2008

Miðasala hafin á Uppskeruhátíð 2008

 

Hin árlega stórhátíð hestamanna, sjálf Uppskeruhátíðin, fer fram laugardaginn 8. nóvember nk. á Broadway í Reykjavík. Dagskrá verður hefðbundin, útnefndir verða knapar ársins í öllum keppnisflokkum sem og hrossaræktarbú ársins 2008. Boðið verður upp á sprell og gaman yfir borðhaldi og svo mun stórhljómsveitin "Í svörtum fötum" leika fyrir dansi fram á nótt undir forystu orkuboltans Jónsa.

Matseðill kvöldsins er eftirfarandi:

Forréttur:     Sjávarréttasúpa með grillaðri hörpuskel
Aðalréttur:   Andabringa orange og lamb með appelsínusósu og rótargrænmeti
Eftirréttur:    Grillaður ananas með suðrænum ávöxtum

 

Miðasala er hafin hjá Broadway í síma 533 1100 og í miðasölu Broadway Ármúla 9, alla virka daga frá kl. 12-18. Miðaverð er kr. 7.900 í borðhald og dansleik, en kr. 2.000 á dansleik frá miðnætti.
Hátíðin er öllum opin og fullvíst að engum mun leiðast í hópi hressustu hestamanna landsins! Tryggðu sér miða í tíma því það er ALLTAF uppselt á þessa stórhátíð.

 

Félag hrossabænda og Landssamband hestamannafélaga

 

07.09.2008 20:23

Ævintýrið Skrapatungurétt 2008

Ævintýrið Skrapatungurétt 2008
Stóðsmölun og réttir í A-Húnavatnssýslu

Dagana 13. og 14. september verður mikið fjör í Austur Húnavatnssýslu, stóðsmölun á Laxárdal og réttir í Skrapatungurétt. Gestir eiga þess kost að slást í för með gangnamönnum á eyðidalnum Laxárdal og upplifa alvöru þjóðlegt ævintýri. Þátttakendur leigja hesta hjá heimamönnum eða mæta með sína eigin hesta.

 Stóðhrossin verða rekin til byggða á laugardeginum 13. september. Lagt er af stað frá Strjúgsstöðum í Langadal kl. 10. og síðan riðið sem leið liggur um Strjúgsskarð og norður Laxárdal. Athugið að aðstaða til að geyma hross nóttina fyrir smölunardag er við sandnámu við Strjúgsstaði  (norðari afleggjari). Þátttakendur eru beðnir að virða að ekki er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni. 

 Við Kirkjuskarðsrétt á Laxárdal er hópurinn um kl 14. Þar hvíla hestar og menn og fá sér að eta og drekka eftir þörfum. Veitingar verða seldar á staðnum. Ráðgert er að leggja af stað kl. 16 frá Kirkjuskarði. Þaðan er riðið norður í Skrapatungrétt sem er ein myndarlegasta stóðrétt landsins. Gestir og heimamenn heillast ávallt af tignarlegu stóðinu. 

 Ferðamannafjallkóngur líkt og í fyrra verður Valgarður Hilmarsson forseti bæjarstjórnar Blönduóss. Hann er heimavanur á þessum slóðum og mun sjá um fararstjórn og leiðsögn ferðamanna í stóðsmöluninni. Fyrir þá sem heldur vilja koma á bíl til að fylgjast með gangnamönnum og réttarstörfum, er rétt að benda á að Skrapatungurétt er í um 15 mín. akstursfjarlægð frá Blönduósi en fram að Kirkjuskarðsrétt er aksturstími um 40 mín.

 Á laugardagskvöldinu verður auk hefðbundins matseðils sérstök stóðréttarmáltið í boði á Pottinum og Pönnunni Blönduósi.Opið verður á veitingahúsinu við Árbakkann þar sem í boði verður hefðbundinn matseðill. 

 Á sunnudagsmorgun hefjast réttarhöld í Skrapatungurétt um kl. 11. Bændur ganga í sundur hross sín og reka þau svo í lok dags til síns heima. Oft finna karlar og konur sinn draumagæðing í smalamennskunni eða í réttunum.

 Stóðréttarhelgi Skrapatunguréttar er hátíð heimamanna og ferðafólks þar sem er spilað, sungið og skemmt sér að sið Íslendinga. Að þessu sinni slæst með í för kvikmyndatökulið. Unnið er að gerð heimildamyndar um viðburðinn. 

 Allir gestir eru hjartanlega velkomnir. Nánari upplýsingar um þjónustu má fá í síma:  891 7863 eða í netfangi [email protected]

  • 1
Flettingar í dag: 465
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 924
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 426067
Samtals gestir: 50892
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 07:14:53

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere