Færslur: 2013 September

27.09.2013 08:48

Endurbætur reiðvega

 

Reiðveganefnd hestamannafélagsins Neista situr ekki auðum höndum frekar en fyrri ár en nefndin lagði fram erindi  hjá skipulags, byggingar- og veitunefnd Blönduósbæjar í sumar þar sem óskað var eftir afstöðu Blönduósbæjar til lagningar reiðvegar vestan Svínvetningabrautar, framhjá heyrúllusvæðinu, vestur undir hitaveitulögn, til suðurs meðfram hitaveituæð að landamerkjagirðingu við Hjaltabakka og þaðan austur með girðingunni áleiðis að veiðihúsi Laxár á Ásum. Þar kom einnig fram að uppi voru áform að bæta reiðveginn sem liggur frá Svínvetningabraut að landamerkjagirðingu og tengjast þar með þeirri leið sem fjallað er um hér að ofan og að auki að kanna hvort hægt væri að gera reiðleið vestan Svínvetningabrautar frá hesthúsabyggð að áðurnefndri reiðleið.

Skipulags-, byggingar- og veitunefndin tók erindi reiðveganefndar fyrir á fundi og samþykkti uppbyggingu þeirra í samræmi við skipulag.

Þessar framkvæmdir hafa nú verið hafnar og unnið er að því að reiðvegir liggi til allra átta og vonandi lýkur framkvæmdum fyrir veturinn.

        

 
 
  • 1
Flettingar í dag: 678
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 924
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 426280
Samtals gestir: 50896
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 12:52:58

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere