1. maí ætlum við að halda þrígangsmót á beinu brautinni úppá velli. Riðnar verða tvær ferðir fram og til baka (4 ferðir). Sýna verður að minnsta kosti 3 gangtegundir, en gefnar verða einkunnir fyrir 3 bestu gangtegundirnar sem parið sýnir.
Dæmi um sýningu:
1. Hægt tölt - brokk - hratt tölt - fet
2. Tölt - skeið - brokk - tölt
3. Hægt tölt - brokk - stökk - fet
4. Brokk - fet - stökk - brokk
Ef áætlað er að sýna tölt en ekki skeið þá þarf að sýna annað hvort hægt eð a hratt tölt, en frjáls ferð á tölti ef skeið er í sýningu.
Einn ríður í einu í forkeppni, en hver á eftir öðrðum í úrslitum. 5 knapar komast í úrslit.
Boðið verður uppá pollaflokk, barna- unglinga- og ungmennaflokk, 2. og 1. flokk.
Koma þarf fram nafn knapa, flokkur, nafn, aldur og litur hests. Áskiljum okkur þann rétt að fella niður og sameina flokka ef ekki næst næg skráning.
Skráning skal berast á netfangið [email protected] og nú er skráningarfrestur til 29. apríl, best að skrá sem fyrst!
Skránignargjöld 2.000 kr. í alla flokka nema pollaflokk sem er frír. Greiðist inná reikning 0307 26 055624 kt. 480269-7139. Skráning ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.
Þetta er síðasta mótið í SAH mótaröðinni og verða stigahæstu knapar í hverjum flokki verðlaunaðir eftir mótið í samkomusalnum í reiðhöllinni.
Ef einhverjar spurningar vakna er ykkur velkomið að hafa samband á facebook við Klöru Sveinbjörns eða í sími 7717763.
Hlökkum til að sjá ykkur,
mótanefnd.
|