Æskulýðsnefnd býður upp á 30 mínútna einkatíma á vellinum á Blönduósi, dagana 02.06, 05.06 og 09.06 fyrir úrtökuna. Einnig er hægt að finna annan tíma ef hann hentar betur.
Tilvalið fyrir þá krakka, unglinga og ungmenni sem stefna á félagsmótið 12. júní og á landsmót.
Skráningar berast á netfangið [email protected] fyrir hádegi 1. Júní, þar sem fram þarf að koma nafn knapa og í hvaða flokki á að keppa.
Kennari verður Ásdís Brynja Jónsdóttir sem er útskrifaður reiðkennari frá Hólum.