16.12.2021 06:21

SAH - mótaröðin vetur/vor 2022

28. jan  -  Smali
20. feb.  -  Tölt T3 og T7
27. mars  -   Fjórgangur
1 . maí   -   Þrígangur, á beinu brautinni uppá velli
20. maí  -  Opið töltmót og skeið, 100 m gæðingaskeið, T3, T7 17 ára og yngri

12. júní  -  Félagsmót/úrtaka
 

Mótanefnd
[email protected]

22.11.2021 09:46

Frá æskulýðsnefnd

 
Miðvikudaginn 24. nóv. kl 18:00 verður haldinn kynning á námkeiðum og öðru sem æskulýðsnefnd mun standa fyrir í vetur.
Við hvetjum foreldra, börn og alla sem hafa áhuga á að kynna sér og móta vetrarstarfið að mæta.

ATH! munum eftir grímum, þær verða ekki á staðnum, stöndum saman í smitvörnum, bara ekki of nálægt.

Æskulýðsnefnd

 

 

 

22.11.2021 09:30

Af gefnu tilefni

 

Vinsamleg tilmæli frá stjórn Neista.
Reiðvöllurinn er ekki fyrir bílaumferð og enga umferð farartækja.

 

 
 
 

20.10.2021 12:35

Námskeið með Jóhönnu Margréti

Helgarnámskeið með Jóhönnu Margréti í reiðhöllinni á Blönduósi, 11. og 12. desember.

Skráning hjá Klöru á netfangið [email protected]

 

 

17.10.2021 08:06

Velkomin í hverfið

 

Þau Klara Sveinbjörnsdóttir og Ágúst Gestur Guðbjargarson hafa tekið hesthúsið við Reiðhöllina í Arnargerði á leigu og verða með starfsemi sína þar í vetur.
Klara útskrifaðist frá háskólanum á Hólum 2018 með B.Sc í reiðmennsku og reiðkennslu. Hún er Borgfirðingur en hefur verið á Suðurlandi við tamningar og þjálfun síðustu ár. Ágúst Gestur er menntaður búfræðingur 2018, frá Eyjarkoti í Skagabyggð. Þau ráku tamningastöð í Sandhólaferju i Rangárþingi ytra áður en þau fluttu á Blönduós.

Við hjá hestamannafélaginu Neista bjóðum þau velkomin á staðinn.

23.06.2021 20:01

Frá æskulýðsnefnd!

Æskulýðsnefnd auglýsti fyrr í sumar ferð fyrir hestfær börn á öllum aldri og hér kemur dagskráin:
 
Lagt verður af stað frá réttinni við Stóru-Giljá föstudaginn 25. júní kl 17:30.
Þaðan ríðum við yfir Húnavatn og í Sveinsstaði þar sem við grillum nokkrar pylsur og gerum klárar tjaldbúðir fyrir þá sem ætla að gista þar. Ef mikið er í vatninu þá verður reiðvegurinn farinn (meðfram þjóðveginum) fram í Sveinsstaði.

 
Á laugardag leggjum við af stað frá Sveinsstöðum kl 10:00.
Riðið út í Þingeyrar og þaðan í Vaðhvamm með nesti í vasa (eða hnakktösku) og svo aftur í Sveinsstaði og gerum lauslega ráð fyrir að vera þar milli kl 16-17. Þar grillum við hamborgara og höfum svolitið notalega stund.

 
Nokkur atriði til að hafa í huga
1) þau börn sem ætla að tjalda og gista verða að vera í fylgd fullorðinna og hafa með sér morgunmat fyrir laugardag
2) þeir sem gista þurfa auðvitað að hafa allan viðlegubúnað með sér
3) ef einhverjir eru með fæðuóþol þarf nefndin að fá að vita það upp á nestið að gera
4) það kostar kr. 250.- fyrir hestinn í næturhólf á Sveinsstöðum

Þessi ferð er alls ekki bundin félagsmönnum, öll börn velkomin.
Skráning hjá  Kristínu 8631241 eða Heiðu Haralds 861 8803 fyrir kl. 13.00 á fimmtudag 24. júní.

20.06.2021 20:19

Félagsmót Neista - úrslit

Félagsmót Neista var haldið í gær í blíðskaparveðri.
Mótið tókst í alla staði frábærlega vel, súpa var í hádeginu og grill fyrir keppendur og starfsfólk að loknu móti.

Við þökkum þeim sem stóðu að og skipulögðu kærlega fyrir sem og starfsfólki og keppendum fyrir vel heppnað mót, einnig áhorfendum  fyrir komuna.



Gæðingatölt

 

1. Ásdís Brynja Jónsdóttir og Klaufi frá Hofi  - 8,35
2. Bergrún Ingólfsdóttir og Lygna frá Lyngholti -  8,23
3. Lilja Maria og Andvari frá Hvammi 2  - 8,10
4. Ægir Sigurgeirsson og Gleði frá Stekkjardal - 8,06
5. Ásdís Freyja og Skör frá Reykjum  - 7,92


Barnaflokkur

 

1. Salka Kristín Ólafsdóttir og Valur frá Sveinsstöðum - 7,77
2. Karoline Kathrine Nielsen og Strönd frá Snjallsteinshöfða  - 7,40

 


Unglingaflokkur

 

1. Sunna Margrét Ólafsdóttir og Píla frá Sveinsstöðum - 7,90


Ungmennaflokkur

 

1. Ásdís Freyja Grímsdóttir og Pipar frá Reykjum -  8,33
2. Sólrún Tinna og Eldborg frá Þjóðólfshaga - 8,19
3. Hjördís Þórarinsdóttir og Glaður frá Blönduósi  -  7,05

 


B Flokkur

 

1. Ægir Sigurgeirsson og Gítar frá Stekkjardal - 8,37
2. Guðjón Gunnarsson og Tenór frá Hólabaki - 8,27
3. Ásdís Brynja Jónsdóttir og Kafteinn frá Hofi - 8,22
4. Sigurður Ólafsson og Ísafold frá Margrétarhofi - 8,21
5. Guðmundur Sigfússon og Órator frá Blönduósi - 7,90

 


A Flokkur

 

1. Lilja Maria og Viðar frá Hvammi 2  - 8,34
2. Bergrún Ingólfsdóttir og Sóldögg frá Röðli -  8,19
3. Guðjón Gunnarsson og Haukur frá Fremstagili - 8,18
4. Ægir Sigurgeirsson og Tomma frá Stekkjardal  - 7,45

 


100 m skeið

1. Lilja María og Viðar frá Hvammi 2 -  7,73sek
2. Sólrún Tinna og Hnakkur frá Reykjum - 9,67sek
3. Ægir Sigurgeirsson og Trilla frá Stekkjardal - 10,20sek
4. Ásdís Freyja Grímsdóttir og Gaukur frá Sveinsstöðum  - 10,40sek

18.06.2021 08:15

Ráslistar

B Flokkur

1. Ægir Sigurgeirsson - Gleði frá Stekkjardal, 11v, rauðblesótt

2. Eline Manon Schrijver - Oddi frá Hofi, 8v, rauðstjörnóttur

3. Jón Kristófer Sigmarsson - Ásjóna frá Hæli, 8v, brún

4. Sigurður Ólafsson – Ísafold frá Margrétarhofi, 6v, brúnblesótt

5. Guðmundur Sigfússon – Órator frá Blönduósi, 10v, rauður

6. Ásdís Brynja Jónsdóttir – Kafteinn frá Hofi, 7v, brúnn

7. Guðjón Gunnarsson – Tenór frá Hólabaki, 8v, jarpur

8. Bergrún Ingólfsdóttir – Galdur frá Geitaskarði, 7v, brúnn

9. Ægir Sigurgeirsson – Gítar frá Stekkjardal, 20v, rauður

10. Selma Svavarsdóttir – Glódís frá Blönduósi, 6v, glóbrún


 

Ungmennaflokkur

1. Sólrún Tinna – Eldborg frá Þjóðólfshaga, 7v, móbrún

2. Hjördís Þórarinsdóttir – Glaður frá Blönduósi, 8v, rauðstjörnóttur

3. Ásdís Freyja Grímsdóttir – Pipar frá Reykjum, 10v, draugmoldóttskjóttur

4. Sólrún Tinna – Hrönn frá Reykjum, 7v, brún

 

 

A Flokkur

1. Lilja Maria – Viðar frá Hvammi 2, 16v, brúnskjóttur

2. Guðjón Gunnarsson – Óskadís frá Syðri-Löngumýri, 7v, jörp

3. Hörður Ríkharðsson – Þrá frá Þingeyrum, 8v, rauðstjörnótt

4. Ásdís Brynja Jónsdóttir – Konungur frá Hofi, 10v, brúnn

5. Ægir Sigurgeirsson – Tomma frá Stekkjardal, 9v, rauðblesótt

6. Bergrún Ingólfsdóttir – Sóldögg frá Röðli, 10v, brún

7. Guðjón Gunnarsson – Haukur frá Fremstagili, 7v, brúnn

 

Gæðingatölt

1. Hjördís Þórarinsdóttir – Glaður frá Blönduósi, 8v, rauðstjörnóttur

1. Ásdís Freyja Grímsdóttir – Hátign frá Reykjum, 6v, brún

2. Lára Margrét Arinbjarnardóttir – Sóldís frá Bergsstöðum, 10v, brún.

2. Sunna Margrét Ólafsdóttir – Píla frá Sveinsstöðum,15v, rauðblesótt

3. Bergrún Ingólfsdóttir – Lygna frá Lyngholti, 7v, brún

3. Ásdís Brynja Jónsdóttir – Klaufi frá Hofi, 10v, rauðskjóttur

4. Ægir Sigurgeirsson – Gleði frá Stekkjardal, 11v, rauðblesótt

4. Lilja Maria – Andvari frá Hvammi 2, 10v, jarpskjóttur

5. Kristín Jósteinsdóttir – Garri frá Sveinsstöðum, 14v, rauðblesóttur

5. Selma Svavarsdóttir – Hlökk frá Blönduósi, 9v, brúnstjörnótt

 

 

Barna- og Unglingaflokkur

1. Salka Kristín Ólafsdóttir – Valur frá Sveinsstöðum, 20v, grár

2. Karoline Kathrine Nielsen – Strönd frá Snjallsteinshöfða, 17v, leirljós

3. Sunna Margrét Ólafsdóttir – Píla frá Sveinsstöðum, 15v, rauðblesóttur

 

 

100m Skeið

1. Lilja María – Gaukur frá Sveinsstöðum, 10v, móálóttur

2. Ægir Sigurgeirsson – Trilla frá Stekkjardal, 8v, moldótt

3. Sigurður Ólafsson – Stormur frá Hríshóli 1, 10v, dökkjarpur

4. Sólrún Tinna – Hnakkur frá Reykjum, 17v, brúnskjóttur

5. Lilja María – Viðar frá Hvammi 2, 16v, brúnskjóttur

 

15.06.2021 18:43

Félagsmót Neista - dagskrá

Þá er komið að því kæru Neistafélagar!!
 
Dagskrá gæðingamóts Neista liggur fyrir. Mótið hefst stundvíslega kl 10:00 laugardaginn 19. júní.
 
Í matarhléinu verður boðið uppá súpu og kaffi gegn vægu gjaldi.
 
Að loknu móti verður boðið uppá grill fyrir starfsmenn og keppendur mótsins.

Dagskrá
10:00 – B Flokkur
Ungmennaflokkur
A Flokkur
Gæðingatölt
Kaffi/Matarhlé
Barna – og Unglingaflokkur
Úrslit
Gæðingatölt
B Flokkur
Ungmennaflokkur
A Flokkur
100m Skeið
 

14.06.2021 12:40

Opið félagsmót Neista

Þá er komið að okkar skemmtilega ??Félagsmóti sem verður opið mót í ár??, endilega allir að taka þátt og búum til frábært mót með frábæru fólki. Hægt er að skrá sig á mótið með því að skanna QR kóðann eða á þessum hlekk: https://forms.gle/wB3cRJkBUq72mKYP9

 

 
 

12.06.2021 18:25

Úrtaka fyrir fjórðungsmót - niðurstöður úr forkeppni

Hestamannafélögin Þytur og Neisti héldu saman úrtöku fyrir Fjórðungsmót Vesturlands í dag á Kirkjuhvammsvelli í blíðskaparveðri.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður Neistafélaga úr forkeppninni. Fyrir hönd Neista komast 5 inn í hverjum flokki og eru tveir vara hestar, niðurstöður úr forkeppni gilda hverjir komast inn á Fjórðungsmót. Í ungmennaflokki má sami knapi einungis fara með 1 hest.
 

Ungmennaflokkur

Pipar frá Reykjum og Ásdís Freyja Grímsdóttir, einkunn 8,297
Eldborg frá Þjóðólfshaga og Sólrún Tinna Grímsdóttir, einkunn 8,11
Nóta frá Tunguhálsi II og Una Ósk Guðmundsdóttir, einkunn 8,057
Lygna frá Lyngholti og Ásdís Freyja Grímsdóttir, einkunn 7,797

 

B-flokkur

Adrían frá Garðshorni og Daníel Jónsson, einkunn 8,77
Hrönn frá Ragnheiðarstöðum og Daníel Jónsson, einkunn 8,52
Galdur frá Geitaskarði og Bergrún Ingólfsdóttir, einkunn 8,433
Tenór frá Hólabaki og Guðjón Gunnarsson, einkunn 8,233
Sinfónía frá Blönduósi og Egill Þórir Bjarnason, einkunn 8,203
Ísafold frá Margrétarhofi og Sigurður Ólafsson, einkunn 8,20
Smiður frá Ólafsbergi og Guðjón Gunnarsson, einkunn 8,137
Kafteinn frá Hofi og Ásdís Brynja Jónsdóttir, einkunn 8,11

 

A-flokkur

Roði frá Lyngholti og Bergrún Ingólfsdóttir, einkunn 8,583
Spenna frá Blönduósi og Egill Þórir Bjarnason, einkunn 8,51
Konungur frá Hofi og Ásdís Brynja Jónsdóttir, einkunn 8,407
Sæmd frá Höskuldsstöðum og Gestur Stefánsson, einkunn 7,693

11.06.2021 00:01

Dagskrá Gæðingamóts Þyts og úrtöku félaganna í Húnavatnssýslu

Dagskrá Gæðingamóts Þyts og úrtöku Þyts, Neista og Snarfara fyrir Fjórðungsmót Vesturlands má sjá hér fyrir neðan. Gæðingatölt var sameinað í einn flokk vegna dræmrar þátttöku. 
 
Mótið hefst á knapafundi kl. 09.30 í félagshúsi Þyts. 
 
Laugardagur
9:30 Knapafundur
10:00 B-flokkur
Matarhlé
Pollaflokkur
Ungmennaflokkur
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
A-flokkur
Kaffihlé
Gæðingatölt
Skeið

 

Sunnudagur
10:30 b-úrslit B flokkur
b úrslit - A flokkur
a-úrslit Gæðingatölt
Hádegismatur
a- úrslit Ungmennaflokkur
a- úrslit Unglingaflokkur
a- úrslit B - flokkur
a- úrslit Barnaflokkur
a- úrslit A - flokkur

 

10.06.2021 06:50

Sjálfboðaliðar á Fjórðungsmót

Hestamannafélagið leitar til félagsmanna og annara sem áhuga hafa til sjálfboðaliðastarfa á Fjóðrungsmóti.

Störfin felast m.a. miðasölu, gæslu á svæðinu, ritarar, umsjón með tónlist, hliðverðir og fleira. Starfsmaðurinn má vinna t.d. eina vakt á dag, tvær eða þrjár eða jafnvel vakt á miðvikudegi og svo aftur á laugardegi.
Starfsmaður sem vinnur að lágmarki 8 klst á FM´21 fær vikupassa á mótið í boði FM´21 en
þó skal það tekið fram að aðeins einn miði er í boði á mann.

Þeir sem hafa áhuga endilega sendið nafn og símanúmer á [email protected] sem allra fyrst.

Flettingar í dag: 388
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 806
Gestir í gær: 76
Samtals flettingar: 435172
Samtals gestir: 51336
Tölur uppfærðar: 28.4.2024 20:55:32

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere