Æskulýðsnefndin hélt uppskeruhátíð fyrir yngri krakkana úr námskeiðshópunum í vetur. Þau mættu öll ásamt foreldrum og Sibbu kennara upp í Reiðhöll í gær og tóku á móti viðurkenningarskjali ásamt að fá Henson peysu merkta Neista og eldrauðan poka frá N1. Auðvitað voru teknar myndir af þessum flottu krökkum með Sibbu kennara.
Að sjálfsögðu var svo pylsupartí eftir myndatökuna
Uppskeruhátið fyrir Knapamerkja krakkana er fyrirhuguð mjög fljótlega.