Færslur: 2011 Júní

05.06.2011 20:00

Uppskeruhátíðir


Það er tími uppskeruhátíða þessa dagana í "góða" veðrinu.

Það var kátur hópur sem hittist við reiðhöllina 2. júní og fór saman í góðan útreiðatúr í tilefni að knapamerkjanámskeið vetrarins voru búin og VORIÐ væri komið.
22 fullorðnir tóku próf í knapamerkjum 2 og sumir tóku próf bæði í 1 og 2.
Farinn var góður útreiðatúr og síðan var grillað í reiðhöllinni og skírteini afhent. Góður hópur og vel heppnuð hátíð.

Að sjálfsögðu fór Magnús Ólafsson með nokkrar vísur emoticon   


Í dag stormaði æskulýðurinn og áhangendur þeirra í Þingeyrar og héldu sína uppskeruhátíð þar. Það var góður hópur sem mætti þar með hesta sína um kl. 15 og riðu út á sand í rokinu. Það gerði ekkert til þó það væri "smá" gola og var sprettur á krökkunum. Gaman að sjá hve dugleg þau eru og vel ríðandi.


Eftir reiðtúrinn var grillað og skírteini afhent og öll fengu þau gjöf fyrir hve frábærlega þau eru búin að standa sig í vetur.  Flottir krakkar, takk takk fyrir veturinn og sjáumst vonandi aftur næsta vetur.
 

Eins og gengur gátu ekki allir krakkarnir mætt í dag en hér er hópurinn sem kom. Á námskeiðum hjá Neista í vetur voru 33 krakkar, 17 af þeim voru í knapamerkjum og luku 14 prófum úr 1, 2 og 3. Knapamerki 3 er tekið á tveim vetrum og eru 3 krakkar sem eru í þeim hópi.

Frábær aðstaða á Þingeyrum, bæði til útreiða, fótbolta innanhúss og grillaðstöðu. Gunnar og Helga, kærar þakkir fyrir að fá að koma og njóta dagsins í frábæru umhverfi.


02.06.2011 22:30

Opnað hefur verið fyrir skráningu á landsmót 50+





Landsmótið verður 24. - 26. júní eins og sést hér að ofan. Hestaíþróttirnar verða á föstudeginum 24. júní. Nánar um dagskrá mótsins má sjá hér. Keppt verður í fjórgangi, fimmgangi og tölti ef næg þátttaka verður. Við skráningu þarf að koma fram kennitala knapa, IS númer hests og í hvaða grein á að keppa.
Hvetjum við Neistafélaga til að taka þátt. Þeir sem hafa áhuga á að vera með eru beðnir um að senda Ingu Maríu póst á [email protected], sem fyrst. USAH borgar skráningargjöldin.

Slóðin inn á heimasíðu mótsins er: http://umfi.is/umfi09/50plus/

01.06.2011 08:28

Hestamenn - hesthúsaeigendur - Þrifdagur.


Laugardaginn 4. júní næstkomandi viljum við standa fyrir átaki til þrifa og lagfæringa í Reiðhöllinni Arnargerði og nágrenni.  Hugmyndin er að mæta kl. 10:00 um morguninn og tína plast, taka drasl, lagfæra gerði, mála glugga í Reiðhöllinni, sópa, þurrka af ofl.  Hengdur verður upp verkefnalisti í Reiðhöllinni og getur hver valið það sem honum hentar og verið eins lengi eða stutt og honum hentar.  Ef fólk kemst ekki á þessum tíma, en hefur áhuga á að leggja hönd á plóg, getur það komið síðar eða haft samband við Rúnar eða Hödda og fengið verkefni sem leysa má af hendi á öðrum tíma.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Nefndin.

Flettingar í dag: 573
Gestir í dag: 42
Flettingar í gær: 791
Gestir í gær: 56
Samtals flettingar: 433426
Samtals gestir: 51181
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 10:27:35

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere