08.10.2009 18:26

Úrskurður aganefndar LH

Þórður Þorgeirsson í eins árs bann



Frá því var skýrt í fréttum í ágúst s.l. að Þórði Þorgeirssyni hefði verið vikið úr landsliði Íslands í hestaíþróttum vegna agabrota. Í áframhaldi af því var málinu vísað til  aganefndar LH. til nánari umfjöllunar. Með úrskurði sínum dags. 29. september 2009 ákvað aganefndin að Þórður Þorgeirsson skuli sæta 12 mánaða keppnisbanni frá 3. ágúst 2009 að telja.

Í rökstuðningi sínum segir nefndin að með hliðsjón af alvarleika agabrota ÞÞ telji hún að hæfileg refsing vegna slíkra brota sé tuttugu og fjögurra mánaða keppnisbann.
Síðan er vikið að því að Þórður hafi sent frá sér afsökunarbeiðni þann 14. ágúst 2009 þar sem hann m.a. biður trúnaðarmenn landsliðsins, hestamenn og aðra velunnara hestamennskunnar afsökunar á agabrotum sínum.

Með vísan til alls þessa ákveðst refsing Þórðar Þorgeirssonar vegna agabrota hans á Heimsmeistaramótinu í Sviss 2009 keppnisbann í 12 mánuði.

Hestafréttir hafði samband við Ragnar Tómasson lögmann Þórðar. Sagði Ragnar að frá hans hálfu væri sjálfgert að vísa málinu til úrskurðar dómstóls ÍSÍ. Öll meðferð og úrvinnsla málsins hefði verið þannig að ástæða væri til að efast um að dómur aganefndar yrði staðfestur hjá ÍSÍ.

Flettingar í dag: 631
Gestir í dag: 44
Flettingar í gær: 791
Gestir í gær: 56
Samtals flettingar: 433484
Samtals gestir: 51183
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 12:01:27

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere