96.
ársþing Ungmennasambands Austur Húnvetninga fór fram um helgina en þar var Ólafur Magnússon valinn íþróttamaður
ársins hjá aðildarfélögum USAH en hann stóð sig frábærlega vel á keppnisvellinum á síðastliðnu ári.
Ólafur tók m.a. þátt í KS-deildinni, vann töltið og varð í 2.
sæti í fjórgangi. Einnig tók hann þátt á Íslandsmóti og var þar í úrslitum í
tölti. Hann vann B-flokk á félagsmóti Neista og varð í 10. sæti í
B-flokki á Landsmóti á Gáska frá Sveinsstöðum.