Færslur: 2010 Apríl

11.04.2010 09:55

Frábær æskulýðssýning


Æskulýðssýning Neista var í gær og tóku tæplega 40 börn, á öllum aldri, þátt í henni.

Elín Hulda Harðardóttir opnaði sýninguna á henni Móheiði sinni og var Elínu veitt viðurkenning fyrir frábæran árangur og framför á árinu 2009. Áttu þær stöllur margan góðan sprettinn á keppnisbrautinn 2009, urðu t.d. í 4. sæti í unglingaflokki á Fjórðungsmóti.



Elín Hulda og Móheiður á Landsmóti 2008


Elstu krakkarnir, 7 talsins, voru með 3 atriði, knapahreysti þar sem 2 lið kepptu sín á milli í ýmsum þrautum þar sem rauða liðið vann. Síðan var hindrunarstökk og svo var kennarinn þeirra Sandra Marín með sýnikennslu. Mjög skemmtilegt og flott hjá þeim.



Hanna Lindmark og Christina Mai náðu 17 indíánum og kúrekum saman í keppni. Þeir kepptu sín á milli í 2 mismunandi þrautum, annars vegar héldu þau á sigti með bolta í og riðu milli stika og hins vegar í slaufur milli stika. Mikil spenna var á síðustu metrunum og fór það svo að indíánar unnu sigtakeppnina en kúrekarnir slaufur, svo bæði liðin fengu verðlaun.



Minnstu krakkarnir, 12 talsins, voru trúðar, riðu berbakt og gerðu ýmsar æfingar á hestbaki, sneru sér við, stóðu upp og gerðu aðrar jafnvægisæfingar. Rosalega dugleg og flott. Sonja Noack hefur leiðbeint þessum krökkum í vetur.



Í lokin voru allir krakkarnir og kennararnir þeirra kallaðir upp þeim veitt smá viðurkenning fyrir frábæra frammistöðu, dugnað, áhuga og bara fyrir hvað við eigum flotta og duglega krakka. Við megum vera mjög stolt af þeim.



Æskulýðsnefndin þakkar öllum þeim sem að þessari sýningu kom á einn eða annan hátt fyrir, án ykkar hefði þessi sýning ekki orðið að veruleika. Gaman að geta átt frábæran og eftirminnilegan dag og fengið að njóta þess að horfa á frábæra krakka á frábærri sýningu. Takk fyrir öll.


Myndir eru komnar inn í myndaalbúm.
Helga Thoroddsen tók fullt af myndum og sendi okkur. Kærar þakkir fyrir.
Selma Svavarsdóttir tók líka nokkrar myndir. Kærar þakkir fyrir.


10.04.2010 23:56

Húnvetnska liðakeppnin - tölt úrslit


Lið 1 (Hvammstangi, Hrútafjörður og Miðfjörður) sigruðu í liðakeppninni með 142,5 stig. Í öðru sæti varð lið 3 (Víðidalur, Fitjárdalur) með 132 stig. Í þriðja sæti varð lið 2 (Vatnsnes og Vesturhóp) með 114,5 stig og í fjórða sæti varð lið 4 (Austur-Húnavatnssýsla) með 50 stig.

Mótið var gríðarsterkt og var stemmingin á pöllunum rosaleg og gaman að sjá hvað stuðningsfólk liðanna studdi vel sitt fólk. Dómarar voru skagfirðingarnir Maggi Magg, Hinrik Már og Júlía.

Úrslitin og myndir má sjá
hér.

  

08.04.2010 15:46

Húnvetnska liðakeppnin - TÖLT ráslistar

Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar verður eins og flestir vita á morgun í Þytsheimum og hefst klukkan 17.00. 104 keppendur eru skráðir til leiks og spennan er rosaleg.
Keppendur verða að vera búnir að greiða skráningargjald fyrir mót inn á 1105-15-200343 kt. 550180-0499, gjaldið er 1.500 fyrir fullorðna en 500 fyrir unglinga.


Dagskrá

Unglingaflokkur
2. flokkur
1. flokkur
B-úrslit í unglingaflokki
B-úrslit í 2. flokki
B-úrslit í 1. flokki
A-úrslit í unglingaflokki
A-úrslit í 2. flokki
A-úrslit í 1. flokki


Ráslista má sjá á heimsíðu Þyts  

07.04.2010 10:15

Æskulýðssýning Hestamannafélagsins Neista


Laugardaginn 10. apríl kl. 14.00

verður sýning á vegum Æskulýðsnefndar Neista
í Reiðhöllinni Arnargerði.

Fram koma um 40 krakkar á öllum aldri
sem hafa verið dugleg að æfa í vetur.


Hvetjum alla til að koma og sjá þessa
skemmtilegu sýningu hjá frábærum krökkum emoticon  

Aðgangseyrir kr. 500 fyrir 12 ára og eldri.

 

  Æskulýðsnefnd Neista


06.04.2010 15:04

Lokakvöld KS - Deildarinnar


Miðvikudagskvöldið 7. apríl fer fram lokakeppnin í KS - Deildinni. Keppt verður í Svaðastaðahöllinni og hefst keppnin kl.20.00. Keppt verður í smala og skeiði.

Mikil spenna er fyrir þetta síðasta kvöld en nokkrir knapar eiga enn raunhæfa möguleika á að vinna deildina. Þar stendur Bjarni Jónasson þó best að vígi. Allt getur gerst þetta lokakvöld, því keppnisgreinarnar bjóða báðar upp á hraða og spennu. Búist er við fjölda áhorfenda en aðsókn að deildinni í vetur hefur verið mjög góð. Björn Jónsson frá Vatnsleysu hefur hætt keppni.

Eftirfarandi er rásröð:

Smali 

  • 1.Ólafur Magnússon - Stjörnudís frá Sveinsstöðum
    2.Líney María Hjálmarsdóttir - Lipurtá frá Varmalæk
  • 3.Þorsteinn Björnsson - Kóngur frá Hólum
  • 4.Riika Anniina - Svala frá Garði
  • 5.Magnús Bragi Magnússon - Frami frá Íbishóli
  • 6.Viðar Bragason - Spænir frá Hafrafellstungu
  • 7.Þorbjörn H. Matthíasson - Frosti frá Akureyri
  • 8.Erlingur Ingvarsson - Ljúfur frá Gularási
  • 9.Sölvi Sigurðarson - Garri frá Hóli
  • 10.Tryggvi Björnsson - Álfur frá Grafarkoti
  • 11.Bjarni Jónasson - Gnótt frá Grund
  • 12.Ísólfur Líndal - Dagur frá Hjaltastaðahvammi
  • 13.Ragnar Stefánsson - Vafi frá Hlíðskógum
  • 14.Heiðrún Ósk Eymundsdóttir - Eldur frá Bessastaðagerði
  • 15.Þórarinn Eymundsson - Glanni frá Ytra-Skörðugili
  • 16.Mette Manseth - Þúsöld frá Hólum
     
  • 17.Elvar Einarsson - Glódís frá Hafsteinsstöðum

 

Skeið

  • 1.Heiðrún Ósk Eymundsdóttir - Venus frá Sjávarborg
  • 2.Magnús Bragi Magnússon - Frami frá Íbishóli
  • 3.Ísólfur Líndal Þórisson - Drift frá Hólum
  • 4.Þorbjörn H. Matthíasson Brá frá Hóli II

  • 5.Ólafur Magnússon - Ódysseifur frá Möðrufelli
  • 6.Riikka Anniina - Styrnir frá Neðri-Vindheimum
  • 7.Elvar Einarsson - Hrappur frá Sauðárkróki
  • 8.Viðar Bragason - Írena frá Arnarholti

  • 9.Líney María Hjálmarsdóttir - Þerna frá Miðsitju
  • 10.Sölvi Sigurðarson - Steinn frá Bakkakoti
  • 11.Tryggvi Björnsson - Kóngur frá Lækjamóti
  • 12.Þorsteinn Björnsson - Melkorka frá Hólum

  • 13.Þórarinn Eymundsson - Bragur frá Bjarnastöðum
  • 14.Ragnar Stefánsson - Maur frá Fornhaga II
  • 15.Bjarni Jónasson - Nótt frá Ytri-Hofdölum
  • 16.Mette Manseth - Þúsöld frá Hólum

  • 17.Erlingur Ingvarsson - Möttull frá Torfunesi

06.04.2010 12:09

Frá Endurmenntun LbhÍ

Námskeið á Miðsitju í Skagafirði um byggingadóma hrossa!    Búið er að opna fyrir skráningar ;-)

 

Lýsing: Bygging hrossa

 

Markmið með námskeiðinu er að bjóða upp á ítarlega fræðslu um byggingu hrossa og hvaða atriði er verið að meta þegar hver eiginleiki byggingar er dæmdur. Einnig verður farið yfir reglur kynbótasýninga og það hvernig best er að stilla hrossi upp í byggingardómi. Námskeiðið byggir að hluta til á fyrirlestrum en mikil áhersla verður lögð á verklegar æfingar.

 

Kennarar: Þorvaldur Kristjánsson og Eyþór Einarsson, kynbótadómarar.

 

Staður og tími:   Lau. 17. apríl kl. 10:30-17:00 (8 kennslustundir) á Miðsitju í samstarfi við Hrossaræktarsamband Skagfirðinga

 

Verð: 14.000 kr (kennsla, gögn, veitingar)

 

Skráningar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á [email protected]  eða í síma 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 3.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun á [email protected] með skýringu.



04.04.2010 11:02

Húnvetnska liðakeppnin - tölt

Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar verður föstudaginn 9. apríl nk. Keppt verður í tölti í unglingaflokki, 2.flokki og 1.flokki. Skráningu skal senda á [email protected] og þarf að vera lokið á miðnætti þriðjudaginn 6. apríl.

Aðgangseyrir: 1.000 kr

Skráningargjald: 1.500 kr.

Hvaða lið tekur fyrsta sætið í liðakeppninni?

Hverjir vinna einstaklingskeppnirnar?

Komdu og fylgstu með spennandi keppni, sjoppa á staðnum !!


Mótanefnd Húnvetnsku liðakeppninnar


Flettingar í dag: 1107
Gestir í dag: 92
Flettingar í gær: 791
Gestir í gær: 56
Samtals flettingar: 433960
Samtals gestir: 51231
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 23:37:37

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere